- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olís karla

- Auglýsing -

Lykilmaður KA ekkert með í úrslitakeppninni

Giorgi Dikhaminjia, hægri hornamaður KA og georgíska landsliðsins, meiddist í leik með Georgíu gegn Ísrael í forkeppni HM 2027 í síðustu viku. Af þeim sökum er tímabili hans með KA lokið. Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, greindi frá þessu í...

Nýr þriggja ára samningur hjá Brynjari Búa

Hægri hornmaðurinn Brynjar Búi Davíðsson hefur skrifað undir nýjan samning við Aftureldingu. Tekur samningurinn til næstu þriggja ára. Brynjar kemur úr afreksstarfi Aftureldingar og hefur í vetur spilað með bæði meistaraflokki félagsins og Hvíta riddaranum þar sem hann er...

Nýta sér uppsagnarákvæði í samningi Agnars Smára

Agnar Smári Jónsson, hægri skytta Vals, mun ekki leika með liðinu á næsta tímabili. Handkastið greinir frá því að handknattleiksdeild Vals hafi ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi Agnars Smára. Samningur hans átti upphaflega að renna út sumarið 2027...
- Auglýsing -

Alex Máni gengur til liðs við HK

HK hefur samið við Alex Mána Oddnýjarson um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Alex Máni kemur frá Fjölni, þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. Alex Máni er 22 ára gamall örvhentur hornamaður sem skoraði...

Myndskeið: Lygilegar lokasekúndur þegar Stjarnan bjargaði sér

Stjarnan tryggði sér í dag sjöunda sætið í Olísdeild kvenna þegar liðið krækti í dramatískt jafntefli gegn Haukum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Lokasekúndurnar voru hreint lygilegar þar sem Inga Maria Roysdóttir jafnaði metin fjórum sekúndum fyrir leikslok með laglegu...

Gísli Rúnar framlengir dvöl sína hjá Aftureldingu

Leikstjórnandinn Gísli Rúnar Jóhannsson hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu til næstu tveggja ára. Hann kom til Aftureldingar frá Haukum fyrir þremur árum. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Gísla Rúnari síðustu árin. Í tilkynningu Aftureldingar í dag kemur...
- Auglýsing -

Þórsarar hafa samið við ungan Dana

Þórsarar á Akureyri eru byrjaðir að styrkja lið sitt fyrir næsta keppnistímabil í Olísdeild karla. Í dag var tilkynnt að liðlega tvítugur Dani, Bertram Simonsen, gangi til liðs við félagið í sumar. Simonsen leikur nú með Lemvig-Thyborøn Håndbold og...

Bjarni Ófeigur heldur ótrauður áfram með KA

Bjarni Ófeigur Valdimarsson, einn besti leikmaður Olísdeildar karla, hefur framlengt samning sinn við KA til næstu tveggja ára, út leiktíðina vorið 2028. Þar með hefur endi verið bundinn á vangaveltur um hvað taki við Bjarna Ófeigi. Bjarni Ófeigur, sem er...

Þrír efnilegir skrifa undir samninga við Val

Handknattleiksdeild Vals hefur framlengt samninga við þrjá efnilega leikmenn. Nýju samningarnir eru til tveggja ára, segir í tilkynningu Vals. Leikmennirnir þrír eru: Dagur Leó Fannarsson hefur leikið stórt hlutverk í miðju varnarinnar í vetur ásamt því að hafa brugðið sér á...
- Auglýsing -

Stefán Magni í bann – Oddur slapp og dómarar hlupu á sig

Hornamaðurinn efnilegi hjá Aftureldingu, Stefán Magni Hjartarson, þarf að bíta í það súra epli að taka út leikbann í fyrsta leik Aftureldingar í umspili Olísdeildar karla sem fram fer eftir viku. Stefán Magni var úrskurðaður í eins leiks bann...

Staðfest leikjadagskrá Olísdeildar karla

Raðað hefur verið niður leikjum í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik. Fyrstu leikirnir fara fram miðvikudaginn 25. mars. Annars vegar mætast deildarmeistarar Vals og HK og hins vegar ÍBV og KA. Daginn eftir eigast við fyrsta sinni FH og...

Mikill efniviður er fyrir hendi hjá ÍBV

Mikill efniviður er fyrir hendi hjá handknattleiksdeild ÍBV. Fyrir vikið hafa margir ungir leikmenn stigið sín fyrstu skref með meistaraflokksliði félagsins í Olísdeildinni í vetur. Töluverð uppstokkun varð á liði ÍBV fyrir tímabilið sem varð til þess að fleiri...
- Auglýsing -

Myndasyrpa: FH – ÍR, 34:28

FH lagði ÍR með sex marka mun, 34:28, í lokaumferð Olísdeildar karla í handknattleik í Kaplakrika í gærkvöld. Tapið gerði endanlega út um vonir ÍR-inga um að eiga einhverja von um að hanga uppi í deildinni. Tveggja ára vist...

Baldur Fritz markakóngur annað tímabilið í röð

Baldur Fritz Bjarnason, leikstjórnandi og stórskytta ÍR, er markakóngur Olísdeildar karla annað tímabilið í röð. Baldur Fritz tók ekki þátt í síðustu þremur leikjum ÍR vegna meiðsla. Liðið féll niður í Grill 66-deildina í gærkvöldi. Baldur Fritz, sem fer til...

Bikarmeistararnir lágu í Kórnum – Brynjar Vignir átti stórleik

HK-ingar létu möguleikann á áttunda og síðasta sæti úrslitakeppni Olísdeildar karla sér í greipum ganga í lokaumferðinni í kvöld. Þeir unnu sannfærandi sigur á bikarmeisturum Hauka, 26:23, í Kórnum eftir að hafa verið yfir frá fyrstu mínútu. Afar traustur...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -