- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olís karla

- Auglýsing -

Reynir Þór fer til MT Melsungen á næstu dögum

Reynir Þór Stefánsson handknattleiksmaður Fram verður kynntur sem nýr leikmaður þýska liðsins MT Melsungen á allra næstu dögum. Þetta hefur handbolti.is samkvæmt heimildum. Allir hnútar hafa verið bundnir og aðeins er þess beðið að félagið tilkynni formlega um komu...

Færeyski hornamaðurinn semur til tveggja ára

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gengið frá samningi við færeyska hornamanninn Jóhannes Bjørgvin til næstu tveggja ára. Jóhannes gekk til liðs við Stjörnuna fyrir síðasta tímabil frá færeyska liðinu VÍF í Vestmanna. Hann skoraði 47 mörk í Olísdeildinni og var með...

Lokahóf: Kátt á hjalla í Úlfarsárdal

Lokahóf handknattleiksdeildar Fram fór fram á laugardaginn og réði kátína sannarlega ríkjum eftir sigursælt tímabil karlaliðs félagsins sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Þetta er fyrsta sinn sem karlaliðið verður tvöfaldur meistari. Kvennalið Fram varð í öðru sæti í...
- Auglýsing -

Lokahóf: Stjörnufólk kom saman og gerði upp tímabilið

Lokahóf meistaraflokka Stjörnunnar fór fram fyrir nokkrum dögum. Leikmenn og sjálfboðaliðar komu saman og áttu skemmtilega kvöldstund. Veittar voru viðurkenningar fyrir bestu- og efnilegustu leikmenn auk þess sem kynnt var að Stjarnan hefur ákveðið að taka þátt í Evrópukeppni...

Norðmaður ráðinn þjálfari nýliða Þórs

Norðmaðurinn Daniel Birkelund hefur verið ráðinn þjálfari Þórs, nýliðanna í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Þórsarar tilkynntu um ráðningu hans í kvöld. Birkelund tekur við af Halldóri Erni Tryggvasyni sem stýrði Þórsliðinu til sigurs í Grill 66-deildinni í byrjun...

Brynjar Vignir er kominn í raðir HK

Markvörðurinn Brynjar Vignir Sigurjónsson hefur ákveðið að ganga til liðs við HK. Hann hittir þar fyrir fyrrverandi samherja sinn hjá Aftureldingu, Jovan Kukobat, en saman eiga þeir að mynda öflugt markvarðapar í Olísdeildarliði HK á næstu leiktíð.Brynar Vignir er...
- Auglýsing -

Lokahóf: Baldur Fritz og Katrín Tinna best hjá ÍR

Síðasta föstudag fór fram lokahóf meistaraflokka handknattleiksdeildar. Þar fögnuðu leikmenn og velunnarar frábærum handboltavetri, leikmenn fengu verðlaun og dýrmætir sjálfboðaliðar vetrarins heiðraðir. Meistaraflokkur karla:Efnilegasti leikmaður: Jökull Blöndal.Besti varnarmaður: Róbert Snær Örvarsson.Besti sóknarmaður: Bernard Kristján Darkoh.Besti leikmaður: Baldur Fritz Bjarnason. Meistaraflokkur kvenna:Efnilegasti...

Gunnar Dan gengur til liðs við HK

Gunnar Dan Hlynsson línumaður hefur skrifað undir samning við HK. Hann kemur til félagsins frá Gróttu en áður lék Gunnar Dan með Haukum upp í meistaraflokk. „Gunnar Dan er öflugur línumaður sem við sjáum mynda frábært teymi með Sigga á...

Lokahóf: Gróttufólk kom saman gerði upp veturinn

Á föstudaginn fór fram lokahóf handknattleiksdeildar Gróttu þar sem meistaraflokkar félagsins, þjálfarar, sjálfboðaliðar og starfsfólk kom saman og gerðu upp tímabilið. Lokahófið var haldið í vallarhúsinu við Vivaldivöllinn á Seltjarnarnesi. Veittar voru viðurkenningar til þeirra sem sköruðu fram úr í...
- Auglýsing -

Haraldur Björn er mættur í heimahaga á ný

Handknattleiksmaðurinn Haraldur Björn Hjörleifsson hefur ákveðið að snúa aftur heim í heimahagana til Aftureldingar eftir tveggja ára veru hjá Fjölni. Haraldur Björn hefur hripað nafn sitt undir tveggja ára samning við Aftureldingu, eftir því sem segir í tilkynningu félagsins...

Daníel Berg verður Stefáni til halds og trausts

Daníel Berg Grétarsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Aftureldingar. Hann mun vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla ásamt því að sjá um U-Lið og þriðja flokk félagsins. Daníel Berg mun þar með vinna þétt með Stefáni Árnasyni sem...

75 ár frá fyrsta Íslandsmeistaratitli Fram

Nú eru 75 ár liðin síðan Fram varð í fyrsta sinn Íslandsmeistari í handknattleik karla. Þá eins og nú hafði Fram betur í keppni við Val á endasprettinum en Valur varð fimm sinnum Íslandsmeistari á árunum 1940 til 1950.Átta...
- Auglýsing -

Molar: Íslandsmeistarar Fram 2025

Fram varð í gærkvöld Íslandsmeistari í 11. sinn í karlaflokki og í þriðja skiptið á öldinni. Fyrri tvö skiptin voru 2006 og 2013. Fram hefur aldrei áður orðið Íslandsmeistari og bikarmeistari í karlaflokki á sama tímabili. Fram vann Stjörnuna í...

Erum við ekki bara bestir?

„Þetta er frábær árangur. Við vinnum þrjá hörkuleiki sem er ógeðslega vel gert,“ sagði Einar Jónsson þjálfari Íslandsmeistara Fram í heldur endasleppu viðtali við handbolt.is eftir að hann hafði stýrt liði sínu til sigurs á Val og þar með...

Geggjað að hafa landað þessu

„Það er geggjað að hafa landað þessu. Við höfðum allir trú á því að við myndum vinna í dag og ná titlinum,“ sagði Þorsteinn Gauti Hjálmarsson Íslandsmeistari með Fram í samtali við handbolta.is í sigurgleðinni eftir að Gauti og...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -