Önnur umferð átta liða úrslita Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld með tveimur viðureignum. HK tekur á móti deildarmeisturum FH í Kórnum klukkan 18.30. Klukkustund síðar mæta leikmenn Fram í heimsókn á Ásvelli og mætir Haukum.HK og Haukar...
Valur átti ekki í teljandi vandræðum með Stjörnuna í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Þegar upp var staðið munaði níu mörkum á liðunum, 30:21. Staðan í...
Valur og Stjarnan mætast í fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í N1-höllinni á Hlíðarenda klukkan 19.
Hægt er að fylgjast með stöðuuppfærslu frá leiknum á HBStatz með því smella á hlekkinn hér fyrir neðan:
Valur –...
„Við gerðum mörg klaufaleg mistök sem varð þess valdandi að Afturelding vann boltann oft á mjög einfaldan hátt,“ segir Gauti Gunnarsson hornamaðurinn eldfljóti í liði ÍBV í samtali við handbolti.is eftir tap ÍBV, 32:30, í fyrstu viðureigninni við Afturelding...
„Það er alltaf barningur þegar maður leikur við ÍBV, stál í stál. Maður þarf alltaf að jafna orkuna þeirra og vera klókur að fara ekki að elta vitleysuna þeirra. Eyjamenn leika oft á huga manna,“ segir Blær Hinriksson leikmaður...
Afturelding hrósaði sigri í fyrstu viðureigninni við ÍBV í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik, 32:30. Leikið var að Varmá. Eyjamenn voru marki yfir í hálfleik, 14:13. Næst mætast liðin í Vestmannaeyjum á þriðjudagskvöld. Oddaleikur, ef til hans...
Afturelding og ÍBV mætast í fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik að Varmá klukkan 16.
Hægt er að fylgjast með stöðuuppfærslu frá leiknum á HBStatz með því smella á hlekkinn hér fyrir neðan:
Afturelding - ÍBV,...
Ásbjörn Friðriksson lék sinn 500. leik fyrir FH í gærkvöld þegar Íslandsmeistararnir unnu stórsigur á HK, 32:21, í Kaplakrika í fyrstu umferð átta liða úrslita Olísdeildar.Í tilkynningu frá kemur fram að Ásbjörn er áttundi FH-ingurinn sem nær þeim merka...
Úrslitakeppni Olísdeildar karla heldur áfram síðdegis og kvöld með tveimur viðureignum í fyrstu umferð átta liða úrslita. Fyrstu leikir í úrslitakeppninni fóru fram í gærkvöld. FH vann stórsigur á HK, 32:21, og Fram vann Hauka naumlega, 28:27.
Olísdeild karla, 8-liða...
Fram vann nauman sigur á Haukum í kaflaskiptri fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal í kvöld, 28:27. Næsta viðureign liðanna verður á mánudaginn á Ásvöllum klukkan 19.30. Fram var tveimur...
Íslandsmeistarar FH voru ekki í vandræðum með HK í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. Yfirburðir FH-inga voru miklir, ekki síst í síðari hálfleik þegar þeir voru mest 15 mörkum yfir. Ellefu...
Úrslitakeppni Olísdeildar karla og umspil Olísdeildar hefst með fjórum leikjum, tveimur í hvorri keppni, klukkan 19.30.FH og HK mætast í úrslitakeppni Olísdeildar karla og einnig Fram og Haukar.Í umspilinu eigast við Selfoss og Víkingur annarsvegar og Grótta og Hörður...
Að margra mati fer í hönd skemmtilegasta tímabil Íslandsmótsins í handknattleik, úrslitakeppnin. Hún hefst í kvöld í karlaflokki með tveimur viðureignum. Deildarmeistarar FH fá HK í heimsókn í Kaplakrika og Haukar sækja Framara heim í Úlfarsárdal. Flautað verður til...
Róbert Snær Örvarsson hefur framlengt samningi sínum við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2027. Róbert er uppalinn ÍR-ingur og hefur spilað lykilhlutverk á báðum endum vallarins undanfarin þrjú tímabil. Hann skoraði 70 mörk í 21 leik í vetur í Olísdeildinni.
Róbert...
Afturelding heldur áfram að semja við þá ungu leikmenn sem hafa verið að spila með liðinu í vetur í Olísdeildinni. Leó Halldórsson, Ævar Smári Gunnarsson, Aron Valur Gunnlaugsson og Haukur Guðmundsson voru að skrifa undir samninga við félagið.
Fjórmenningarnir eru...