- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Ágúst er ekki af baki dottinn – bætir við ári

Ágúst Birgisson er síður en svo á þeim buxunum að leggja keppnisskóna á hillina. Tilkynnt var í kvöld að hann hafi skrifað undir eins árs samning við FH. Á næsta ári verður liðinn áratugur síðan Ágúst gekk til liðs...

Handboltaveisla á Akureyri í vikulokin

Famundan er handboltaveisla í KA-heimilinu og í Höllinni á Akureyri frá næsta fimmtudegi, 14. ágúst, fram á laugardag þegar KG Sendibílamótið fer fram. Í karlaflokki mætast KA og Þór tvívegis en í kvennaflokki eigast við KA/Þór, Grótta, ÍBV og...

Hellas-menn fengu ekki rönd við reist gegn ÍBV

Þrátt fyrir að leika fyrir félag með öflugt heiti þá voru leikmenn hollenska liðsins Hellas sem hvolpar í höndum leikmanna ÍBV í æfingaleik liðanna í Den Haag í Hollandi í dag. Eyjamenn mættu til leiks af fullum þunga og...
- Auglýsing -

Eyjamenn létu mörkunum rigna í síðari hálfleik gegn hollensku meisturnum

Karlalið ÍBV í handknattleik lagði hollensku meistarana Aalsmeer, 36:31, í fyrri leik sínum í æfinga- og keppnisferð til Hollands í gær. Leikið var í smábænum De Bloemhof. Eyjamenn áttu undir högg að sækja í fyrri hálfleik og voru fjórum...

Hafnfirðingurinn framlengir dvölina hjá ÍBV

Varnarjaxlinn úr Hafnarfirði, Ísak Rafnsson, hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við ÍBV. Ísak hefur gert það gott með ÍBV síðustu þrjú ár eftir að hann söðlaði um og hleypti heimdraganum eftir að hafa leikið með FH árum...

Vonast til að verða með á nýju ári

Einar Rafn Eiðsson sem í vikunni var ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs KA í handknattleik segist vongóður að snúa aftur út á leikvöllinn eftir áramót. Hann gekkst í sumar undir aðgerð á mjóðm. Einar Rafn er allur að sækja í sig...
- Auglýsing -

Yngri leikmennirnir létu ljós sitt skína í sigri Vals

Gunnar Róbertsson skoraði 11 mörk þegar Valur vann Víking í æfingaleik í Safamýri 32:29 eftir að hafa einnig verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Í tilkynningu Vals segir að yngri leikmenn meistaraflokksins hafi fengið tækifæri til þess að láta...

Ásta Björt skrifaði undir nýjan samning

Örvhenta skyttan Ásta Björt Júlíusdóttir hefur skrifað undir samning um áframhaldandi veru hjá ÍBV næsta árið, hið minnsta. Frá þessu sagði ÍBV í gær. Ásta Björt hefur leikið með ÍBV um árabil og verið ein af traustari leikmönnum liðsins...

Einar Rafn verður spilandi aðstoðarþjálfari KA

Einar Rafn Eiðsson skrifaði í dag undir nýjan samning við handknattleiksdeild KA og verður nú spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og verður því Andra Snæ Stefánssyni þjálfara liðsins innan handar bæði innan sem utan vallar. Einar Rafn sem er 35 ára...
- Auglýsing -

Meistarakeppni karla fer fram eftir tvær vikur

Íslands- og bikarmeistarar Fram og silfurlið Poweradebikarsins, Stjarnan, leiða saman hesta sína í meistarakeppni HSÍ í karlaflokki í Lambhagahöllinni fimmtudaginn 21. ágúst. Til stendur að flauta til leiks klukkan 19. Leikurinn er fyrr á ferðinni en viðureignir Meistarakeppninnar á undanförnum...

Róbert Örn verður áfram í Kórnum

Róbert Örn Karlsson markvörður og HK hafa náð samkomulagi um að sá fyrrnefndi haldi áfram að verja mark félagsins í Olísdeildinni og í Poweradebikarnum á næstu leiktíð. Hann verður þar með einn þriggja markvarða HK. Brynjar Vignir Sigurjónsson kom...

Neistin staðfestir leigu á Dánjal til Fram

Færeyska úrvalsdeildarliðið Neistin hefur staðfest að Dánjal Ragnarsson leiki með Íslands- og bikarmeisturum Fram á komandi leiktíð. Í tilkynningu félagsins í morgun kemur fram að Dánjal hafi verð leigður til eins árs til Fram. Dánjal gekk til liðs við...
- Auglýsing -

Dánjal er sagður mættur í Lambhagahöllina

Dánjal Ragnarsson er ganga til liðs við Íslandsmeistara Fram í handknattleik. Þetta herma heimildir Handkastsins þar sem ennfremur segir að Færeyingurinn sé þegar byrjaður að æfa með Fram-liðinu í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Dánjal þekkir vel til í íslenskum handknattleik....

Sigurður verður Erlingi Birgi til halds og trausts

Sigurður Bragason fráfarandi þjálfari kvennaliðs ÍBV verður aðstoðarþjálfari karlaliðs ÍBV á næstu leiktíð. Eyjamenn tilkynntu þetta í kvöld á samfélagsmiðlum í kjölfar Þjóðhátíðar um nýliðna helgi. Sigurður verður þar með aðstoðarmaður Erlings Birgis Richardssonar sem tók í sumar við þjálfun...

Ágústa Tanja framlengir samning sinn við Selfoss

Ágústa Tanja Jóhannsdóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss til ársins 2028. Tanja, sem verður 19 ára í haust, er mjög efnilegur markvörður sem leikið hefur með meistaraflokki í þrjú tímabil og tekið miklum framförum á þeim tíma. Tanja hefur...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -