- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Við getum ekki fært til leikina í enska boltanum

Viðureign Vals og Stjörnunnar í Meistarakeppni kvenna í handknattleik í dag verður í beinni útsendingu á Handboltapassanum en ekki í Sjónvarpi Símans eins og vonir stóðu til. Að sögn Róberts Geir Gíslasonar framkvæmdastjóra HSÍ á það sér skýringar. „Valur vildi...

Dagskráin: Meistarakeppni kvenna, Evrópuleikur og Ragnarsmótið

Keppnistímabil handknattleikskvenna hefst formlega hér á landi í dag þegar Valur og Stjarnan mætast í Meistarakeppni HSÍ í N1-höll Vals á Hlíðarenda klukkan 13.30. Liðin léku til úrslita í Poweradebikarnum á síðustu leiktíð og þess vegna leiða þau saman...

Erum með sama kjarna og í fyrra – skemmtilegur tími framundan

https://www.youtube.com/watch?v=7aVDFYjCsZI „Ég er ánægður með það sem ég hef fengið út úr æfingaleikjunum. Ég hef að minnsta kosti fengið svör við spurningum mínum sem er mikilvægt,“ segir Róbert Gunnarsson þjálfari karlaliðs Gróttu í samtali við handbolta.is en Róbert að hefja...
- Auglýsing -

FH hafði betur gegn ÍBV – 16 marka sigur Selfoss

FH fagnaði sigri á Ragnarsmóti kvenna í handknattleik í kvöld eftir að hafa lagt lið ÍBV að velli með fimm marka mun, 30:25. Sigurður Bragason þjálfari ÍBV tefldi fram táningaliði að þessu sinni. Hann gaf eldri og reyndari leikmönnum...

Ungir og ferskir strákar sem eru tilbúnir að djöflast

https://www.youtube.com/watch?v=wGXnPsyoSg4 „Mér líst ágætlega á okkur. Ég held að við séum svolítið óskrifað blað,“ segir Bjarni Fritzson þjálfari ÍR, nýliða Olísdeildar karla í handknattleik í samtali við handbolta.is. ÍR-ingar unnu Grill 66-deildina í vor og eru þar með á ný...

Önnur umferð Ragnarsmótsins stendur fyrir dyrum

Önnur umferð Ragnarsmóts kvenna í handknattleik fer fram í kvöld. Mótið hófst í fyrrakvöld. ÍBV vann þá Víking, 27:16, og Selfoss hafði betur gegn FH, 40:21. Leikirnir í kvöld:ÍBV – FH, kl. 18.Selfoss – Víkingur, kl. 20.15.Leikirnir verða sendir úr...
- Auglýsing -

Samvinna Arons og Jóns Bjarna tryggði FH sigur í meistarakeppninni

Íslandsmeistarar FH unnu bikarmeistara Vals í Meistarakeppni HSÍ í karlaflokki í kvöld, 30:28, þegar liðin leiddu saman kappa sína í Kaplakrika. Jafnt var að loknum fyrri hálfleik, 15:15, í annars afar jöfnum leik.FH-ingar voru sterkari síðasta stundarfjórðung leiksins. Munaði...

Höfum mikinn áhuga á því að horfa ofar á töfluna í vetur

„Undirbúningur hefur gengið vel. Við höfum æft stíft frá því um miðjan júlí. Auðvitað hefur þetta kannski verið pínu slitrótt þar sem við vorum með þrjá sterka leikmenn í U18 ára landsliði karla sem tók þátt í Evrópumótinu, þar...

Fáum alvöru generalprufu fyrir Evrópuleikinn

https://www.youtube.com/watch?v=W4622AdEeJc „Við fáum alvöru generalprufu fyrir Evrópuleikinn okkar á laugardaginn,“ segir Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari karlaliðs Vals í samtali við handbolta.is um viðureign kvöldsins þegar bikarmeistarar og Evrópubikarmeistarar Vals sækja Íslandsmeistara FH heim í Kaplakrika í Meistarakeppni HSÍ. Flautað verður...
- Auglýsing -

Arndís Áslaug og Elísabet Ása skrifa undir

Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert tveggja ára samninga við Arndísi Áslaugu Grímsdóttur og Elísabetu Ásu Einarsdóttur. Báðar eru þær fæddar árið 2007 og eru leikmenn 3. flokks kvenna. Arndís tók þátt í 11 leikjum með meistaraflokki í fyrra og Elísabet Ása...

Dagskráin: Meistarakeppni HSÍ í Kaplakrika

Íslandsmeistarar FH og bikarmeistarar Vals mætast í Meistarakeppni HSÍ í handknattleik karla í Kaplakrika í kvöld. Viðureignin hefst klukkan 19.30. Leikurinn verður sendur út í sjónnvarpi Símans. Einnig verður textalýsing á handbolti.is.

Selfoss og ÍBV unnu stórsigra í fyrstu umferð

Olísdeildarliðin ÍBV og Selfoss unnu andstæðinga sína, Víking og FH, örugglega í fyrstu umferð Ragnarsmótsins í handknattleik kvenna í Sethöllinni á Selfossi í kvöld. Selfoss, sem endurheimti sæti sitt í Olísdeildinni í vor eftir yfirburðasigur í Grill 66-deildinni, var...
- Auglýsing -

Vissi vel að það væri áskorun falin í þessu starfi

https://www.youtube.com/watch?v=bBNWP_Pn5g8 Halldór Jóhann Sigfússon flutti heim í sumar eftir tveggja ára veru við þjálfun í dönsku úrvalsdeildinni og tók við þjálfun HK sem leikur annað tímabilið í röð í Olísdeild karla þegar keppni hefst í næstu viku. Halldór Jóhann segir...

Valur án eins síns mikilvægasta leikmanns fyrstu vikurnar

Magnús Óli Magnússon leikur ekki með Evrópubikarmeisturum Vals á fyrstu vikum keppnistímabilsins. Hann gekkst undir aðgerð í sumar vegna brotins þumalfingurs á hægri hönd. Aðgerðin gekk vel en vegna þess á hversu viðkvæmum stað brotið var fyrir handknattleiksmenn verður...

Gunnar reiknar ekki með nafna sínum í vetur

Handknattleiksmaðurinn Gunnar Kristinn Malmquist Þórsson leikur ekki með Aftureldingu á komandi leiktíð. Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingaliðsins staðfesti þessi tíðindi við handbolta.is í gær. Rætt hefur verið um það manna á milli síðan í vor að Gunnar hefði í hyggju...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -