Keppni hefst í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld. Upphafsleikur deildarinnar verður á milli Vals og ÍBV. Viðureignin fer fram í N1-höll Vals á Hlíðarenda. Flautað verður til leiks klukkan 18.30. Fyrir þá sem ekki komast á Hlíðarenda í...
Stjarnan hefur endurheimt vinstri hornamanninn Hjálmtýr Alfreðsson eftir árs fjarveru. Einnig hefur Færeyingurinn Jóhannes Björgvin gengið til liðs við Garðabæjarliðið.
Jóhannes, sem er 24 ára gamall vinstri hornamaður, hefur tvö síðustu ár leikið með VÍF í Vestmanna og gert það...
Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert eins árs lánssamning við markvörðinn Magnús Gunnar Karlsson. Magnús kemur úr herbúðum Hauka þar sem hann er uppalinn. Magnús er fæddur árið 2002 og lék á sínum tíma með yngri landsliðum Íslands. Hann lék 24...
https://www.youtube.com/watch?v=tMB-dfRfw6g
„Fyrst og fremst ríkir eftirvænting meðal okkur fyrir að byrja að spila,“ segir Einar Jónsson þjálfari karlaliðs Fram í handknattleik í samtali við handbolta.is í dag en Framarar sækja Íslandsmeistara FH heim í fyrstu umferð Olísdeildar karla á fimmtudagskvöld.
Undirbúningurinn...
Fáum kom eflaust á óvart að Íslandsmeisturunum í handknattleik kvenna og karla, Val og FH, er spáð sigri í Olísdeildum kvenna og karla í árlegri atkvæðagreiðslu þjálfara og fyrirliða í deildunum tveimur. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var kynnt á fundi með...
Eyþór Lárusson hefur samið til þriggja ára við handknattleiksdeild Umf. Selfoss um áframhaldandi þjálfun meistaraflokks kvenna. Eyþór hefur verið aðalþjálfari meistaraflokks kvenna síðan sumarið 2022 og farið með liðinu í gegnum súrt og sætt á þeim tíma. Áður hafði...
„Ég er sáttur við þá stöðu sem við erum í á undirbúningstímanum. Eins og venjulega á þessum tíma erum við mjög þungir. Það kemur vissulega niður á handboltalegum gæðum í undirbúningsleikjunum. Það má alveg vera þannig á þessum tíma....
Inga Dís Axelsdóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Umf. Selfoss um tvö ár.
„Inga Dís er gríðarlega efnileg vinstri skytta sem steig sín fyrstu skref með meistaraflokki síðasta vetur, en hún var í hóp í 11 leikjum þrátt fyrir...
Ragnarsmóti kvenna í handknattleik lauk í Sethöllinni á Selfossi í gær. Að loknum síðasta leik voru meistarar krýndir. Eins og kom fram á handbolti.is í morgun þá stóð lið Selfoss uppi sem sigurvegari.
Að vanda lét mótshaldari, handknattleiksdeild Selfoss, ekki...
https://www.youtube.com/watch?v=J_peB0LEQlk
„Ég er fullur tilhlökkunar fyrir tímabilinu sem framundan er og því að takast á við verðugt verkefni á heimaslóðum,“ segir Gunnar Steinn Jónsson fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaður í handknattleik um það verkefni sitt að taka við þjálfun karlaliðs Fjölnis,...
Lið Selfoss stóð uppi sem sigurvegari á Ragnarsmóti kvenna sem lauk í Sethöllinni á Selfossi í gær. Selfoss-liðið vann ÍBV í þriðju og síðustu umferðinni, 27:24, og hafði þar með betur í hverri einustu viðureign sinni á mótinu. FH,...
„Guð minn góður hvað það var gaman að mæta aftur út á völlinn eftir allan þennan tíma,“ sagði Lovísa Thompson sem lék með Val í dag í fyrsta sinn síðan í maí 2022. Hún fór út til Danmerkur þá...
„Valsliðið var mikið betra í dag og keyrði bara yfir okkur,“ sagði Patrekur Jóhannesson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar eftir stórtap, 29:10, fyrir Val í Meistarakeppni HSÍ á Hlíðarenda í dag. Stjarnan var án tveggja öflugra leikmanna, Emblu Steindórsdóttur og Tinnu...
„Þetta var svakalega mikill munur en á móti kemur að maður vissi ekki alveg við hverju mátti búast af Stjörnunni,“ sagði Elín Rósa Magnúsdóttir markahæsti leikmaður Vals í stórsigrinum á Stjörnunni í Meistarakeppni HSÍ í dag, 29:10, þegar handbolti.is...
Valur hafði mikla yfirburði í leik við Stjörnuna í Meistarakeppni HSÍ í kvennaflokki í N1-höllinni í dag. Himinn og haf skildi liðin nánast að og voru úrslitin eftir því, 29:10. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 17:7.
Valur var kominn...