- Auglýsing -
- Auglýsing -

Útlönd

- Auglýsing -

Molakaffi: Tønnesen, Serdio, Gros, Axnér, Faljić

Stian Tønnesen þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins HØJ Elite var látinn taka hatt sinn og staf fyrir helgina. Patrik Liljestrand aðstoðarþjálfara var gert að að gera það sama. HØJ Elite kom upp í úrvalsdeildina fyrir leiktíðina og rakaði til sín öflugum...

Jana Mittún íþróttamaður ársins í Færeyjum

Handknattleikskonan Jana Mittún var í gær valin íþróttamaður eða íþróttanafn Færeyja 2025 í hófi sem haldið var í Þórshöfn. Hún er kjölfesta færeyska kvennalandsliðsins sem tók þátt í heimsmeistaramótinu í Þýskalandi og Hollandi á síðasta ári með góðum árangri....

Ein frá Íslandi í færeyska landsliðshópnum

Ein færeysk kona sem leikur hér á landi er í 16 kvenna landsliðshópi Færeyinga sem valinn hefur verið fyrir tvo leiki við Portúgal í undankeppni Evrópumótsins 4. og 8. mars, heima og að heiman. Natasja Hammer leikmaður Stjörnunnar er...
- Auglýsing -

Barcelona semur við ungstirni

Spænska stórliðið Barcelona hefur komist að samkomulagi við spænska ungstirnið Ian Barrufet um að hann leiki áfram með liðinu til sumarsins 2029. Spænski miðillinn Sport greinir frá. Barrufet er 21 árs vinstri hornamaður sem hefur verið að skipa sér sess...

Mensah segir skilið við danska landsliðið

Danski handknattleiksmaðurinn Mads Mensah hefur ákveðið að gefa ekki oftar kost á sér í danska landsliðið í handknattleik. Mensah, sem er 34 ára gamall, lék fyrst með landsliðinu fyrir 15 árum, hefur klæðst landsliðstreyjunni í 225 skipti og orðið...

Krækir Rúnar í Palicka fyrir lokasprettinn?

Hermt er að Rúnar Sigtryggsson þjálfari Wetzlar hafi sænska markvörðinn Andreas Palicka undir smásjánni þessa dagana. Rúnar mun ekki slá á móti frábærum markverði fyrir lokasprettinn í þýsku úrvalsdeildinni og Palicka er sagður geta hugsað sér að kveðja norska...
- Auglýsing -

Gætu keypt eigin leikmann strax aftur

Upp er komin undarleg staða í máli þýska varnartröllsins Johannes Golla, sem hefur samþykkt að ganga til liðs við MT Melsungen frá SG Flensburg-Handewitt í sumar. Í samningi Golla við Melsungen er nefnilega ákvæði um að hægt sé að...

Dregið hefur verið í umspilsleiki HM

Dregið var til umspilsleikja fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik í gær en leikir fara fram upp úr miðjum maí. Íslenska landsliðið tekur ekki þátt í umspilinu en það vann sér þátttökurétt á HM með því að ná einu af...

Afríkumeistarar í fjórða sinn í röð

Egyptar urðu í gær Afríkumeistarar í handknattleik karla í fjórða sinn í röð er þeir lögðu Túnisbúa, 37:24, í úrslitaleik keppninnar sem fram fór í Rúanda. Þetta er í fjórða sinn í röð sem Egyptaland verður Afríkumeistari og í...
- Auglýsing -

Argentína meistari í Mið- og Suður Ameríku

Argentína vann Brasilíu, 26:25, í úrslitaleik Mið- og Suður-Ameríkukeppninnar í handknattleik karla sem staðið hefur yfir í Paragvæ síðustu daga. Keppnin er að þessu sinni undankeppni fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Frakklandi og Þýskalandi eftir ár. Fjögur efstu lið...

Hættir ekki fyrr en dagar hans verða taldir

Daninn Per Bertelsen, sem árum saman sat í framkvæmdastjórn Alþjóða handknattleikssambandsins, segist ekki hafa trú á að Hassan Moustafa forseti Alþjóða handknattleikssambandsins láti af embætti fyrr en dagar hans í þessari jarðvist verða taldir. Moustafa, sem verður 82 ára...

Vinnur Gidsel þriðja árið í röð?

Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur tilkynnt hvaða þrír leikmenn koma til greina sem besti karlkyns leikmaður heims fyrir árið 2025. Á listanum eru tveir Danir og einn Króati. Mathias Gidsel, hægri skytta heimsmeistara Danmerkur og Þýskalandsmeistara Füchse Berlín, er einn þeirra og...
- Auglýsing -

Ótrúlegt myndskeið: Dómarinn jafnaði metin

Eitt furðulegasta mark sem um getur í handknattleikssögunni leit dagsins ljós í leik Dijon og Viborg í Evrópudeild kvenna í dag. Leiknum lauk með 30:30 jafntefli og var jöfnunarmark Dijon með nokkrum ólíkindum. Leikmaður Dijon átti þá skot í stöng,...

Snýr aftur og veitir Íslendingum samkeppni

Þýska félagið SC Magdeburg hefur tilkynnt að Spánverjinn Antonio Serradilla gangi til liðs við félagið að nýju í sumar, aðeins einu ári eftir að hann yfirgaf það og gekk í raðir Stuttgart. Serradilla er hávaxin vinstri skytta og kemur því...

Fer á undan áætlun til Parísar

Norðmaðurinn Simen Lyse gengur til liðs við franska stórliðið PSG frá Kolstad í Noregi að Evrópumótinu í Danmörku, Noregi og Svíþjóð loknu. Upphaflega stóð til að Lyse færi til PSG í sumar. Hinir ýmsu miðlar á Norðurlöndum höfðu greint frá...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -