Útlönd

- Auglýsing -

Krabbameinið á bak og burt hjá Herrem

Þær miklu gleðifréttir bárust af norska reynsluboltanum Camillu Herrem í gær að hún væri laus við brjóstakrabbamein sem hún hefur glímt við frá síðasta sumri. Herrem, sem er 39 ára gömul, sneri þrátt fyrir krabbameinsgreininguna aftur á handboltavöllinn með liði...

Fjórir frá Íslandi í færeyska æfingahópnum

Fjórir leikmenn sem leika með íslenskum félagsliðum eru í 32 manna æfingahópi færeyska landsliðsins sem Peter Bredsdorff-Larsen og Hjalti Mohr Jacobsen þjálfarar hafa valið til æfinga 15. og 21. mars í Þórshöfn. Fjórmenningarnir eru Valsararnir Allan Norðberg og Bjarni...

Svíinn sterki áfram hjá Íslendingaliðinu

Sænski línumaðurinn Oscar Bergendahl hefur skrifað undir nýjan samning við Evrópumeistara SC Magdeburg í Þýskalandi. Nýi samningurinn gildir til loka tímabilsins 2027/28. Bergendahl, sem er 31 árs og afskaplega sterkur varnarmaður, hefur leikið með Íslendingaliði Magdeburg frá því í febrúar...
- Auglýsing -

Stærstu félög heims vilja spænska ungstirnið

Marcos Fis, 18 ára hægri skytta BM Granollers og spænska A-landsliðsins, er eftirsóttur af nokkrum af stærstu félögum heims. Þrátt fyrir ungan aldur lék Fis með Spáni á EM 2026 í byrjun ársins og er algjör lykilmaður hjá Granollers. Spænska...

Verð ekki að spila með landsliðinu 37 ára gamall

Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins, viðurkennir fúslega að hann sjái ekki fyrir sér að geta verið ennþá í landsliðinu þegar hann verður orðinn 37 ára gamall eins og Antje Döll, fyrirliði þýska kvennalandsliðsins. „Ég held að ég geti nú þegar...

Sænskur Íslandsvinur hættir þjálfun – alltof miklar kröfur

Sænski handboltaþjálfarinn Andreas Stockenberg, sem ýfði hár margra Íslendinga meðan á Evrópumótinu í handknattleik stóð yfir í janúar, hefur ákveðið að hætta þjálfun í vor og segja skilið við handknattleik, alltént um stundarsakir. Stockenberg hefur unnið við þjálfun í...
- Auglýsing -

Gidsel opnar sig um andleg veikindi

Mathias Gidsel, besti handboltamaður heims samkvæmt Alþjóðahandknattleikssambandinu undanfarin þrjú ár, viðurkennir að hafa glímt við andleg veikindi þegar hann var að brjótast fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum. Daninn hefur unnið hvern titilinn á fætur öðrum á ferlinum og er...

Markvörðurinn skoraði fimm mörk

Johanna Bundsen, sænskur markvörður Metz, átti stórkostlegan leik fyrir liðið þegar það vann Havre í frönsku 1. deildinni í síðustu viku. Hún varði ekki einungis fjölda skota heldur skoraði hún fimm mörk í einum og sama hálfleiknum. Bundsen varði 14...

Molakaffi: Dahmke, Arnoldsen, Joa, Pena, Nowottny, Tournat

Þýski landsliðsmaðurinn og vinstri hornamaðurinn Rune Dahmke hefur skrifað undir nýjan samning við THW Kiel til eins árs, út leiktíðina 2027. Dahmke fylgdi þar með í fótspor Domagoj Duvnjak og Hendrik Pekeler. Arnór Atlason þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro verður...
- Auglýsing -

Hagman sú þriðja í þúsund marka klúbbinn

Nathalie Hagman, hægri hornamaður sænska landsliðsins, kom sér í afar fámennan hóp í gærkvöldi þegar hún skoraði sjö mörk í 29:26 sigri Svíþjóðar á Serbíu þar í landi. Rauf Hagman þá þúsund marka múrinn með sænska landsliðinu. Hún er aðeins...

Wille fannst fjögur ár ekki nægur tími

Jonas Wille, fráfarandi þjálfari norska karlalandsliðsins, viðurkennir fúslega að hann hefði viljað halda starfi sínu áfram. Norska handknattleikssambandið tilkynnti í gær að samningur Wille sem rennur út í sumar verði ekki endurnýjaður. „Ég gerði öllum það morgunljóst að ég vildi...

Wille verður að taka pokann sinn hjá norska landsliðinu

Ekki stendur til hjá norska handknattleikssambandinu að endurnýja starfssamning sinn við Jonas Wille sem þjálfað hefur karlalandsliðið undanfarin fjögur ár. Samningur Wille rennur út 1. júlí. Frá þessu greinir norska handknattleikssambandið í tilkynningu í dag. Nokkur óánægja hefur verið með...
- Auglýsing -

Seinni leiknum hefur einnig verið slegið á frest

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur ákveðið að slá á frest viðureign Grikklands og Ísraels í undankeppni EM kvenna sem til stóð að háð yrði í Grikklandi á sunnudaginn. Á mánudaginn var leik þjóðanna sem átti að fara fram í Ísrael...

Sneri aftur í sterkustu deild heims 43 ára

Þýski markvörðurinn Nikolas Katsigiannis sneri ansi óvænt aftur á völlinn með Hannover-Burgdorf þegar liðið fékk Frisch Auf! Göppingen í heimsókn í þýsku 1. deildinni um liðna helgi. Katsigiannis er 43 ára, lagði skóna á hilluna á síðasta ári og...

Fenginn vegna meiðsla en sleit sjálfur krossband

Alec Smit, hollenskur hægri hornamaður danska stórliðsins Aalborg Håndbold, varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné í 34:24 sigri á HØJ Elite í dönsku úrvalsdeildinni um liðna helgi. Smit er var fenginn til liðs við Aalborg vegna...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -