Þótt ekki verði margir leikir á dagskrá í meistaraflokkum í handknattleik hér heima í kvöld er óhætt að segja að úrvalið verði fjölbreytilegt.
Vonir standa til þess að í kvöld verði hægt að leiða til lykta 16-liða úrslit bikarkeppni kvenna í handknattleik. KA/Þór sækir ÍBV heim til Vestmannaeyja en viðureigninni var a.m.k. þrífrestað í síðasta mánuði. Leikurinn á að hefjast klukkan 17.30.
Annarri viðureign sem var frestað fyrr á keppnistímabilinu fer fram í kvöld. Er þar um að ræða viðureign Fjölnis og Hauka U sem átti að fara fram í lok september. Leikmenn Fjölnis eru langt frá að vera komnir í jólafrí því þeir eiga annan leik í deildinni á fimmtudaginn.
Síðast en ekki síst leikur Valur þriðja heimaleik sinn í Evrópudeildinni í handknattleik karla í kvöld í Origohöllinni þegar Valur taka á móti sænska meistaraliðinu Ystads. Flautað verður til leiks klukkan 19.45 og er ennþá hægt að nálgast miða á tix.is.
Bikarkeppni HSÍ, kvennaflokkur 16-liða úrslit:
Vestmannaeyjar: ÍBV – KA/Þór, kl. 17.30 – sýndur á RÚV.
Grill 66-deild karla:
Dalhús: Fjölnir – Haukar U, kl. 20.
Staðan í Grill 66-deild karla.
Evrópudeild karla, B-riðill, 6. umferð:
Origohöllin: Valur – Ystads IF HF, kl. 19.45 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan:
Flensburg | 5 | 4 | 0 | 1 | 166 – 149 | 8 |
PAUC | 5 | 3 | 0 | 2 | 157 – 154 | 6 |
Ystads | 5 | 3 | 0 | 2 | 158 – 157 | 6 |
Valur | 5 | 2 | 1 | 2 | 169 – 170 | 5 |
FTC | 5 | 1 | 1 | 3 | 171 – 176 | 3 |
Benidorm | 5 | 1 | 0 | 4 | 151 – 166 | 2 |
Aðrir leikir í kvöld í B-riðli:
Benidorm – PAUC, kl. 17.45.
Flensburg – FTC, kl. 19.45.