Ein viðureign fer fram í kvöld í Olísdeild karla í handknattleik. Framarar sækja Aftureldingarmenn heim á Varmá kl. 19.30. Um er að ræða fyrstu viðureign beggja liða á árinu í deildinni. Segja má að um grannaslag sé að ræða eftir að Framarar komu sér fyrir í Grafarholtinu á síðasta sumri. Grafarholt tilheyrði fyrir löngu Mosfellssveit.
Afturelding situr í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig eftir 13 leiki. Fram situr í fimmta sæti með 15 stig að loknum 14 leikjum. Fram missti Stjörnuna upp fyrir sig í gærkvöld. Stjarnan lagði Gróttu, 31:27. Selfoss færðist upp að hlið Fram með sigri á Haukum.
Leikur kvöldsins
Olísdeild karla:
Varmá: Afturelding – Fram, kl. 19.30 – sýndur á aftureldingtv.
Textalýsing verður frá leiknum á handbolti.is.