Leikið verður í fjórum deildum meistaraflokka kvenna og karla í dag, laugardag. Annarri umferð Olísdeilda og Grill 66-deilda lýkur. Síðan tekur við níu daga hlé á keppni í Olísdeild kvenna vegna æfingaviku landsliðsins sem hefst á mánudaginn og lýkur með landsleik við Danmörku í Frederikshavn að viku liðinni.
Leikir dagsins
Olísdeild kvenna, 2. umferð:
KA-heimilið: KA/Þór – ÍBV, kl. 13.30.
Hekluhöllin: Stjarnan – ÍR, kl. 14.
Lambhagahöllin: Fram – Selfoss, kl. 14.30.
N1-höllin: Valur – Haukar, kl. 15.
Staðan í Olísdeildum og næstu leikir.
Olísdeild karla, 2. umferð:
Lambhagahöllin: Fram – Þór, kl. 17.
Grill 66-deild karla, 2. umferð:
N1-höllin: Valur 2 – Haukar 2, kl. 12.30.
Sethöllin: Selfoss 2 – HBH, kl. 15.30.
Ísafjörður: Hörður – ÍH, kl. 16.
Staðan í Grill 66-deildum og næstu leikir.
Grill 66-deild kvenna, 2.umferð:
N1-höllin: Valur 2 – Fram 2, kl. 17.30
- Leikir dagsins verða sendir út á Handboltapassanum.
- Einnig verður HBStatz með stöðu- og textauppfærslur frá leikjunum eins og öðrum á leiktíðinni. Hægt er að fylgjast með stöðuppfærslum HBStatz á forsíðu handbolti.is.