- Auglýsing -
Þrír leikir eru á dagskrá í 16. umferð Olísdeildar karla í kvöld þegar keppni hefst á ný í deildinni eftir tæplega sex vikna EM-pásu. Þá lýkur átta liða úrslitum Powerade bikars kvenna með einum leik.
HK fær FH í heimsókn í Kórinn, ÍBV tekur á móti Selfossi í Suðurlandsslag í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og ÍR mætir KA í Skógarseli.
Í Powerade-bikar kvenna tekur Grill 66 deildar lið FH á móti Evrópubikar-, Íslands- og deildarmeisturum Vals.
Leikir kvöldsins
Olísdeild karla:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Selfoss, kl. 18.
Kórinn: HK – FH, kl. 18.
Skógarsel: ÍR – KA, kl.18.30.
Powerade bikarinn, átta liða úrslit:
Kaplakriki: FH – Valur, kl. 20.
- Leikirnir verða sendir út á Handboltapassanum.
- Auglýsing -



