Keppni fer á fulla ferð í Grill 66-deild kvenna og karla í kvöld með hörkuleikjum. Efsta lið Grill 66-deildar kvenna fær Aftureldingu í heimsókn. Grótta er efst og taplaus eftir fjóra leiki. Aftureldingarliðið féll úr Olísdeildinni í vor og hefur sett stefnuna á að fara rakleitt upp aftur í lok leiktíðar. Ljóst að ekkert verður gefið eftir í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í kvöld.
Eins verður allt lagt í sölurnar í íþróttahúsinu í Safamýri þegar liðin í þriðja og fjórða sæti leiða saman hesta sína klukkan 19.30.
Af leikjum Grill 66-deildar karla ber hæst stórleik HK og Víkings í Kórnum. Viðureignin hefst klukkan 20. Liðin féllu úr Olísdeildinni í vor og hafa það markmið að staldra aðeins við í eitt tímabil í Grill 66-deildinni.
Grill 66-deild kvenna, 5. umferð:
Safamýri: Víkingur – ÍR, kl. 19.30 – sýndur á VíkingurTV.
Hertzhöllin: Grótta – Afturelding, kl. 19.30 – sýndur á GróttaTV.
Staðan í Grill 66-deild kvenna:
Grótta | 4 | 4 | 0 | 0 | 129:95 | 8 |
FH | 4 | 3 | 0 | 1 | 104:97 | 6 |
ÍR | 3 | 2 | 0 | 1 | 86:57 | 5 |
Víkingur | 4 | 2 | 0 | 2 | 114:107 | 4 |
Fram U | 4 | 2 | 0 | 2 | 110:109 | 4 |
Afturelding | 3 | 1 | 1 | 1 | 76:74 | 3 |
Fjölnir/Fylkir | 3 | 1 | 0 | 2 | 64:82 | 2 |
Valur U | 3 | 0 | 0 | 3 | 68:84 | 0 |
HK | 4 | 0 | 0 | 4 | 102:148 | 0 |
Grill 66-deild karla, 6. umferð:
KA-heimilið: KA U – Fjölnir, kl. 19.30.
Höllin Akureyri: Þór – Haukar U, kl. 19.30.
Úlfarsárdalur: Fram U – Selfoss U, kl. 20.
Kórinn: HK – Víkingur, kl. 20 – sýndur á HKTV.
Staðan í Grill 66-deild karla.
Staðan í Grill 66-deild karla:
HK | 5 | 4 | 1 | 0 | 167 – 135 | 9 |
Valur U | 5 | 4 | 1 | 0 | 148 – 131 | 9 |
KA U | 5 | 2 | 2 | 1 | 159 – 156 | 6 |
Víkingur | 5 | 2 | 1 | 2 | 154 – 148 | 5 |
Þór | 5 | 2 | 1 | 2 | 143 – 144 | 5 |
Selfoss U | 5 | 2 | 1 | 2 | 176 – 177 | 5 |
Fram U | 5 | 2 | 0 | 3 | 149 – 156 | 4 |
Fjölnir | 4 | 1 | 1 | 2 | 122 – 130 | 3 |
Haukar U | 4 | 1 | 0 | 3 | 108 – 112 | 2 |
Kórdrengir | 5 | 0 | 0 | 5 | 123 – 160 | 0 |
EM kvenna:
Holland – Þýskaland, kl. 17 – sýndur á RÚV2.
Rúmenía – Spánn, kl. 19.30.