- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskráin: Þriðja umferð hefst með tveimur leikjum

Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Þriðja umferð Olísdeildar kvenna hefst í kvöld með tveimur viðureignum. Annarsvegar viðureign ÍR og ÍBV sem fram fer í Skógarseli í Breiðholti og hefst klukkan 18 og hinsvegar leikur Vals og Selfoss sem háður verður á Hlíðarenda og hefst klukkan 19.30.

ÍR og Selfoss eru stigalaus fyrir viðureignir kvöldsins. Valur er aftur móti með fjögur stig og ÍBV tvö eftir sigur á Gróttu í fyrstu umferð.

Þriðju umferð lýkur annað kvöld. Þá verður hlé gert á keppni Olísdeildar kvenna fram til 2. október vegna þátttöku kvennalandsliðsins á alþjóðlegu móti í Tékklandi undir lok mánaðarins.

Leikir kvöldsins

Olísdeild kvenna:
Skógarsel: ÍR – ÍBV, kl. 18.
N1-höllin: Valur – Selfoss, kl. 19.30.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

  • Báðir leikir verða sendir út á Handboltapassnum. Einnig verður viðureign ÍR og ÍBV sýnileg í opinni dagskrá í sjónvarpi Símans.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -