Síðustu leikir ársins í Olísdeild karla og í Grill 66-deildum karla fara fram í dag. Strax upp úr hádeginu taka leikmenn ÍBV og Íslandsmeistara FH til við leik í íþróttahöllinni í Vestmannaeyjum. Aftureldingarmenn eru á leiðinni norður á Akureyri og mæta KA í KA-heimilinu í kvöld. Liðin mætast á ný á sama stað á miðvikudaginn í 8-liða úrslitum Poweradebikarsins.
Selfoss tekur á móti Herði frá Ísafirði í Sethöllinni klukkan 14 í næst síðasta leik ársins í Grill 66-deild karla.
Handknattleiksdeild Selfoss segir í tilkynningu að boðið verði upp á góða jólastemningu í Sethöllinni. Rjúkandi heitar vöfflur verða til sölu fyrir leik og í hálfleik.
Topplið Þór sækir Val2 heim á Hlíðarenda klukkan 15 og binda liðin enda á keppni í Grill 66-deildinni á árinu.
Leikir dagsins
Olísdeild karla:
Vestmannaeyjar: ÍBV – FH, kl. 13.30.
KA-heimilið: KA – Afturelding, kl. 19.
Staðan og næstu leikur í Olísdeildum.
Grill 66-deild karla:
Sethöllin: Selfoss – Hörður, kl. 14.
N1-höllin: Valur2 – Þór, kl. 15.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.