Undanúrslit úrslitakeppni Olísdeildar kvenna hefst í dag auk þess sem Afturelding og Stjarnan halda áfram kapphlaupi sínu um sæti í Olísdeildinni á næstu leiktíð.
Deildarmeistarar Vals taka á móti ÍR á Hlíðarenda klukkan 14 í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum. Valsliðið mætir til leiks eftir talsvert hlé en liðið sat yfir í fyrstu umferð. ÍR-liðið mætir hinsvegar galvaskt til leiks eftir þrjá hörkuleiki við Selfoss og nauman sigur í oddaleiknum á Selfoss á þriðjudagskvöld, 28:27. Framlengingu þurfti til að leiða viðureignina til lykta.
Framarar hafa eins og Valsarar haft góðan tíma til þess að leggja á ráðin fyrir undanúrslitin. Haukar sækja Framara heim í Lambhagahöllin klukkan 16.15 í dag. Haukar unnu ÍBV í fyrstu umferð í tveimur leikjum.
Að Varmá eigast við Afturelding og Stjarnan öðru sinni í umspili Olísdeildar kvenna klukkan 16. Stjarnan vann fyrsta leik liðanna sem fram fór í Hekluhöllinni á miðvikudaginn, 27:25. Vinna þarf þrjá leiki til þess að öðlast víst sæti í Olísdeild kvenna á næsta tímabili.
Leikir dagsins
Olísdeild kvenna, undanúrslit, fyrstu leikir:
N1-höllin: Valur – ÍR, kl. 14.
Lambhagahöllin: Fram – Haukar, kl. 16.15.
Umspil Olísdeildar kvenna, úrslit, þriðji leikur:
Varmá: Afturelding – Stjarnan (0:1), kl. 16.
- Leikirnir verða sendir út á Handboltapassanum. Viðureign Fram og Hauka verður einnig í opinni dagskrá í sjónvarpi Símans.
- Stöðuuppfærslu frá leikjunum verður að finna á HBStatz.
Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2025
Umspil Olís kvenna 2025: leikjadagskrá og úrslit