- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagur og Gunnar eru hetjur – ekki svikarar!

Samsett mynd. Raggi Óla á myndina af Gunnari Magnússyni t.v. en Hafliði Breiðfjörð á myndina af Degi Sigurðssyni t.h.
- Auglýsing -

Nú jæja, er búið að finna sökudólg á því að landsliðsmenn Íslands í handknattleik voru slegnir út af laginu af Króötum í Zagreb og sendir heim frá HM!; hugsaði ég þegar ég sá fyrirsögnina; „Ég skil ekki í honum að svíkja land og þjóð!“ í mbl.is í gær, fimmtudaginn 30. janúar 2025.

Ég fór spenntur að lesa. Sá sem skrifaði vitnaði í áhugavert símtal sem hann fékk frá „gömlum kunningja“ í vikunni, sem var ósáttur við aðkomu Gunnars Magnússonar, fyrrverandi aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, að leik Íslands og Króatíu á HM. Gunnar mun hafa leikgreint íslenska liðið fyrir Dag Sigurðsson, þjálfara króatíska liðsins.

„Ég skil ekkert í honum að svíkja land og þjóð á þennan hátt og afhenda mótherjum Íslands innanhússupplýsingar um íslenska liðið,“ sagði „kunninginn“ enn fremur.

 Skrifari ritaði: „Það má alveg taka undir þetta sjónarmið.

Yrðum við sátt ef fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra myndi gera úttekt á varnarmálum Íslands fyrir óvinveitta þjóð?

 Ég er ekki viss um það.“

Já, þetta er einkennileg niðurstaða. Ólyginn sagði mér að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem skuld sé skellt á saklausan mann og hann sagður svikari. 

Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar fagnar með Gunnari Kristni Malmquist Þórssyni eftir sigurinn í bikarkeppninni 2023. Mynd/Kristján Orri Jóhannsson

Það er sárt að sjá að vegið sé að heiðursmanninum Gunnari Magnússyni, sem hefur náð frábærum árangri sem þjálfari Hauka, ÍBV og Aftureldingar. Einnig sem leikgreinandi með íslenska landsliðinu undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar og nú með landsliði Króatíu.

Gunnar er ekki þekktur fyrir að skella skuldinni á aðra. Hann er drengur góður, sannur heiðursmaður, eins og Dagur Sigurðsson. Þeir leggja allt í þau verkefni sem þeir taka sér fyrir hendur.

Gunnari er frjálst vinna hvar sem er. Það var ekkert leyndarmál að Dagur fékk Gunnar til samstarfs strax fyrir Ólympíuforkeppnina í mars í fyrra. Fyrr en síðar gat komið til þess að Ísland og Króatía mættust.

Gunnar hætti hjá HSÍ janúarlok í fyrra (2024) og fór að vinna á verkfræðistofu samhliða þjálfun Aftureldingar.

Það er fyrst og fremst mikil viðurkenning fyrir Gunnar og íslenskan handknattleik, að Gunnar hafi fengið verkefni eins og hjá Króatíu. 

Að skella skuldinni á Gunnar, vegna ósigurs gegn Króatíu, er lákúra. Það eru engin leyndarmál í handboltanum lengur. Allir leikir teknir upp og allskyns tölvutækni notuð til þess að lesa andstæðinginn. Gunnar eru fyrst og fremst snjall í tækninni, eitthvað sem Dagur vissi og kallaði þess vegna Gunnar til sögunnar.

Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Króatíu. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Króatar náðu að slá ráðvillta Íslendinga út af laginu með indjánavörn (5-1) og síðan urðu Ungverjar og Evrópumeistarar Frakka fyrir barðinu á Króötum. Frakkar hreinlega teknir í bólinu af Króötum (Degi og Gunnari). Það var mikið afrek hjá Króötum, þar sem margir af bestu leikmönnum þeirra voru á sjúkralistanum.

Ekki man ég eftir að einn einasti Dani setti horninn í Guðmund Þórð Guðmundssonar þegar hann stýrði Íslandi til sigurs gegn Dönum á EM 2020 og slökkti þar með á vonum Dana um sæti í milliriðli. Gummi vissi allt um danska liðið og nýtti sér það að sjálfsögðu. Undir stjórn Guðmundar urðu Danir Ólympíumeistarar í Ríó 2016.

Hvað næst? Verða Heimir Hallgrímsson og Guðmundur Hreiðarsson kallaðir svikarar ef Írland, undir þeirra stjórn, myndi leggja Ísland að velli í HM-leik?

Dagur og Gunnar geta fagnað heimsmeistaratitli með Króötum á sunnudaginn í Noregi. Það yrði mikið afrek hjá þeim félögum.

Dagur hefur áður fagnað Evrópumeistaratitli sem þjálfari Þýskalands og Asíumeistaratitli sem þjálfari Japans. Er ekki komið að heimsmeistaratitlinum?

Maður – og heiðursmaður!

Ég vil að lokum vitna Skagamanninn Ríkharð Jónsson, knattspyrnukappa og þjálfara, sem sagðist hafa verið tapsár. Eftir einn tapleik með Fram 1947 kom skoski þjálfari Fram, James McCrae, til Ríkharðs og sagði setningu, sem Rikki sagði að hafa síðan orðið honum að miklu gagni í ólgusjó knattspyrnunnar: „Ef þú vinnur – tekur þú sigrinum eins og maður, en ef þú tapar – tekur þú tapinu eins og heiðursmaður!“

Sigmundur Ó. Steinarsson.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -