- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dagur og Króatar eru brjálaðir út í EHF

- Auglýsing -

Króatískir fjölmiðlar fara nú mikinn vegna ósættis við skipulag Evrópumóts karla sem lýkur um helgina í Jyske Bank Boxen í Herning. Gol.hr greinir frá því að Dagur Sigurðsson þjálfari sé það ósáttur að hann hyggist sniðganga fyrirhugaðan blaðamannafund á laugardag fyrir úrslitaleik og leikinn um bronsverðlaun mótsins á sunnudag.

Dagur fór hamförum á blaðamannafundi í Herning í dag eftir því sem fram kom á Vísir.is. Sparaði Dagur síst stóru orðin. Líkti hann EHF við skyndibitastað. Króatíska landsliðið gistir í Silkeborg sem 40 km frá Herning.

Eins og skyndibitastaður

„Þau eru eins og skyndibitastaður, þeim er alveg sama um gæðin, þau vilja bara selja. Eða reyndar, þau eru eins og viðburðarfyrirtæki, sem pantar bara einhverja listamenn til að setja upp sýningu og flottan blaðamannafund,“ hefur Vísir eftir Degi sem hafði ekki náð æfingu eða fundi með leikmönnum eftir miðjan dag.’

Mæta Þjóðverjum á morgun

Króatar mæta Þjóðverjum í undanúrslitum Evrópumótsins klukkan 17.45 á mörgun, föstudag. Þjóðverjar hafa verið með bækistöðvar í Herning síðan Evrópumótið hófst.

Á miðlinum eru birtar myndir úr liðsrútu Króatíu, sem þarf að aka í fimm klukkutíma frá Malmö til Herning. Þar sést að minnsta kosti einn leikmaður liðsins sofandi á gólfi rútunnar.

Einnig gætir mikillar óánægju með að króatíski hópurinn þurfi að gista í Silkeborg í nótt, sem er í 40 kílómetra fjarlægð frá Herning.

Með öllu óviðundandi

Sportske novosti er enn ósáttari við Dani og lætur blaðamaðurinn Drazen Pinevic þá heyra það óþvegið.

„Það er er með öllu óviðundandi að fara fram með þessum hætti á svona stóru móti og þá sérstaklega undir lok þess. Danirnir hjá EHF eru greinilega að gera það sem hentar þeim best.

Ekki nálægt neinu

Það þarf ekkert að ræða um keppnishöllina sem slíka en Herning er ekki nálægt neinu. Af hverju er ekki frekar notast við Royal Arena í Kaupmannahöfn fyrir úrslitahelgina þegar Kaupmannahöfn er borg sem býður upp á bókstaflega allt?“ skrifar Pinevic.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -