- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dana Björg skoraði fimm mörk fyrir Íslandsferð

- Auglýsing -

Dana Björg Guðmundsdóttir sem leikur fyrir Volda og landsliðskona í handknattleik skoraði fimm mörk í góðum sigri Volda á Åsane, 35:32, í næstefstu deild norska handknattleiksins í gær. Leikið var á heimavelli Åsane-liðsins sem er í fjórða sæti. Volda er í næsta sæti á eftir, með tveimur stigum færra í fimmta sæti.


Sex umferðir eru eftir af deildarkeppninni og er Flint Tønsberg efst með 34 stig, er sjö stigum á undan Volda.

Dana Björg er væntanleg til Íslands í dag. Fram undan eru landsleikir við Svartfellinga í undankeppni Evrópumótsins. Fyrri viðureignin fer fram hér á landi á miðvikudagskvöld klukkan 18 í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Síðari leikurinn verður í Podgorica eftir viku.


Íslenska landsliðið kemur saman til æfinga í fyrramálið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -