-Auglýsing-

Daniel eltir bróður sinn til Þýskalands

- Auglýsing -

Spænski handknattleiksmaðurinn Daniel Dujshebaev og sonur þjálfarans öfluga, Talants Dujshebaev, verður samherji Reynis Þórs Stefánssonar hjá þýska liðinu MT Melsungen á næstu leiktíð. Dujshebaev, sem árum saman hefur leikið undir stjórn föður síns hjá Indurstria Kielce, samdi við MT Melsungen til þriggja ára frá og með komandi sumri.


Daniel fylgir þar með í fótspor bróður síns, Alex, sem samdi í febrúar um að leika með Gummersbach frá og með næsta keppnistímabili.

Daniel er hávaxin hægrihandarskytta. Hann er yngri en Alex og einnig nokkuð hærri í loftinu. Daniel er 28 ára gamall og hefur af og til átt sæti í spænska landsliðinu hvar bróðir hans er fastamaður.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -