- Auglýsing -
Færeyski handknattleiksmaðurinn Dánjal Ragnarsson, sem lék með ÍBV um tveggja ára skeið og varð m.a. Íslandsmeistari vorið 2023, hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt, Neistan í Þórshöfn.
Síðan Dánjal kvaddi Vestmannaeyjar í árslok 2023 hefur hann leikið með VÍF í Vestmanna í Færeyjum. Hann varð bikarmeistari með VÍF vorið 2024. Dánjal kom til ÍBV á sínum tíma frá Neistanum.
- Auglýsing -