-Auglýsing-

Döhler flytur á ný til Svíþjóðar í sumar

- Auglýsing -

Þýski markvörðurinn Phil Döhler sem lék í fjögur ár við góðan orðstír með FH hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Amo HK. Tekur samningurinn gildi í sumar og tekur til næstu þriggja ára, út leiktíðina í sumarbyrjun 2029.


Döhler þekkir vel til handboltans í Svíþjóð. Hann varði mark HF Karlskrona frá 2023 til 2025. Döhler gekk til liðs við nýliða norsku úrvalsdeildarinnar, Sandefjord TIF, síðasta sumar.

Hann hefur gert það gott með liðinu en það nægir ekki til þess að hann haldi áfram eftir að núverandi leiktíð verður að baki. Sandefjord situr í sjöunda sæti af 14 liðum úrvalsdeildarinnar í Noregi.

Samherji Arnars Birkis

Amo HK er með bækistöðvar í Alstermo í suðausturhluta Svíþjóðar, nánar tiltekið í Smálöndum. Liðið er í 10. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á sínu þriðja keppnistímabili í röð í deildinni. Með Amo leikur örvhenta stórskyttan Arnar Birkir Hálfdánsson. Hann er samningsbundinn félaginu næsta árið.

Arnar Birkir lék einnig eitt sinn með FH.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -