- Auglýsing -
Dregið verður til undanúrslita í bikarkeppni HSÍ, kvenna- og karlaflokki, á föstudaginn í Minigarðinum í Skútuvogi. Stefnt á að hefjast handa klukkan 12.15.
Í karlaflokki verða nöfn eftirtalinna félaga í skálunum sem dregið verður úr: FH, Haukar, ÍR og KA.
Fram, KA/Þór og Haukar eru þegar komin í undanúrslit í kvennaflokki. Í kvöld skýrist hvort það verður FH eða Valur sem bætist í hópinn.
Leikið í lok mánaðar
Áformað er að undanúrslitaleikirnir í kvennaflokki fari fram miðvikudaginn 25. febrúar en daginn eftir leiki karlaliðin til undanúrslita. Ekki liggur fyrir á vef HSÍ hvar verður leikið. Á síðasta ári fóru úrslitaleikir bikarkeppninnar fram í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum.
- Auglýsing -



