Sænska handknattleikskonan Linn Blohm, sem verður í eldlínunni með sænska landsliðinu gegn því íslenska á Ásvöllum á miðvikudagskvöldið, er ein þriggja handknattleikskvenna sem tilnefnd er í kjöri Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, á handknattleikskonu ársins 2023.
Blohm og samherjar koma til Íslands á morgun og mæta íslenska landsliðinu í undankeppni Evrópumótsins, 7. riðli á Ásvöllum á miðvikudagskvöldið klukkan 19.30. Ókeypis aðgangur er leikinn í boði Arion banka. Liðin mætast aftur í Karlskrona á laugardaginn.
Er hjá ungverska meistaraliðinu
Blohm er 31 árs gömul línukona og leikmaður ungverska meistaraliðsins Györi Audi ETO KC. Hún skoraði m.a. 58 mörk í Meistaradeildinni á síðasta ári. Auk þess að vera afburða línukona er hún ein burðarása í vörn sænska landsliðsins sem hafnaði í fjórða sæti á HM í desember á síðasta ári. Hún skoraði 25 mörk á HM í Danmörku, Noregi og Svíþjóð 2023 og var með 86,3% skotnýtingu auk sex stolinna bolta í átta leikjum.
Blohm er svo sannarlega engin nýgræðingur í hópi allra fremstu handknattleikskvenna heims því á HM 2019 var hún valin í úrvalslið mótsins.
Auk Blohm eru norska handknattleikskonan Henny Reistad og Estelle Nze Minko landsliðskona Frakklands tilnefndar í kjörinu að þessu sinni.
Hér er myndskeið með Blohm og samherjum í sænska landsliðinu frá HM 2023:
𝐌𝐚𝐬𝐭𝐞𝐫𝐟𝐮𝐥 𝐦𝐨𝐦𝐞𝐧𝐭𝐬 💎🇸🇪 Sweden's supreme goals in their quarter-final victory against Germany 🔝 Pick your favourite 👇
— International Handball Federation (@ihf_info) December 13, 2023
1⃣ Jenny Carlson
2⃣ Tyra Axner
3⃣ Linn Blohm#DENNORSWE2023 #aimtoexcite @hlandslaget pic.twitter.com/7AxWxeB4YU
Tengt efni:
Axnér hefur valið hópinn sem mætir Íslandi
Tveir nýliðar í landsliðshópnum – fjórar breytingar frá HM
Staðan í 7. riðli undankeppni EM:
Svíþjóð | 2 | 2 | 0 | 0 | 76:37 | 4 |
Ísland | 2 | 2 | 0 | 0 | 60:37 | 4 |
Færeyjar | 2 | 0 | 0 | 2 | 43:65 | 0 |
Lúxemborg | 2 | 0 | 0 | 2 | 31:71 | 0 |
- Eftir leikina við Svía á íslenska landsliðið tvo leiki eftir í undankeppninni, gegn Lúxemborg ytra 3. apríl og heima á móti Færeyingum 7. apríl.
- Tvö efstu lið hvers riðils tryggir sér sæti í lokakeppni EM sem fram fer undir árslok í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss.
- Einnig fara fjórar af átta liðum sem verða í þriðja sæti undankeppninnar í aðalkeppnina í desember.