Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í IFK Kristianstad sóttu tvö stig í greipar IK Sävehof í gær, 26:24, þegar þráðurinn var tekinn upp í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik að loknum Evrópumótinu. Einar Bragi, sem skrifaði nýverið undir nýjan tveggja ára samning við IFK, skoraði tvö mörk í leiknum í gær og gaf tvær stoðsendingar. IFK er efst í deildinni með 30 stig, er stigi á undan Malmö.
Birgir Steinn Jónsson skoraði tvisvar fyrir IK Sävehof og gaf eina stoðsendingu. Sävehof er í fjórða sæti deildarinnar.
Þrjú mörk Arnórs Viðarssonar dugðu Karlskrona skammt þegar liðið tapaði með átta marka mun fyrir Önnereds í Gautaborg, 35:27. Karlskrona situr í níunda sæti deildarinnar.
Þrjú mörk – þriggja marka tap
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði þrjú mörk er Amo HK tapaði á heimavelli fyrir Helsingborg, 32:29. Skotnýting Arnars Birkis hefur oft verið betri en að þessu sinni. Sjö skot hans misstu marks.
Amo HK er í 10. sæti af 14 liðum deildarinnar með 16 stig og er tveimur stigum á eftir Alingsås sem situr í áttunda sæti. Alingsås á enn fremur leik til góða. Átta efstu lið deildarinnar komast í úrslitakeppnina í vor.
Berta Rut skoraði fjögur mörk
Berta Rut Harðardóttir skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar þegar lið hennar Kristianstad HK tapaði með sjö marka mun í heimsókn til Önnereds HK í Gautaborg í gærkvöld, 31:24.
Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.



