Á fundi aganefndar HSÍ á þriðjudag var einn leikmaður í Grill 66 deild kvenna og einn starfsmaður í 3. flokki kvenna úrskurðaðir í eins leiks bann.
Sara Rún Gísladóttir leikmaður Fram 2 hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í leik Vals 2 og Fram 2 í Grill 66 deildinni þann 7. febrúar síðastliðinn.
Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að úrskurða Söru Rún í eins leiks bann, sem tekur gildi á hádegi í dag.
Ægir Örn Sigurgeirsson starfsmaður Hauka hlaut þá útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Vals og Hauk í 3. flokki kvenna þann 7. febrúar.
Sömuleiðis var það niðurstaða aganefndar að úrskurða Ægi Örn í eins leiks bann með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ og tekur leikbann hans einnig gildi á hádegi í dag.
Fékk ekki bann fyrir grófa ódrengilega hegðun
Eitt mál til viðbótar var tekið fyrir á fundi aganefndar. Róbert Snær Örvarsson leikmaður ÍR hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik ÍR og KA í Olísdeild karla þann 4. febrúar.
Aganefnd mat það sem svo að brotið félli undir reglu 8,5 a) og var það því niðurstaða nefndarinnar að ekkert skuli aðhafst frekar vegna málsins.
Úrskurð aganefndar má lesa í heild sinni á heimasíðu HSÍ.



