- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ekki tókst Íslendingum að slá meistaraefnin út af laginu

Teitur Örn Einarsson var markahæstur hjá Gummersbach í Berlín í kvöld. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Ekki tókst Íslendingaliðinu Gummersbach að stöðva meistaraefni Füchse Berlin í kvöld þegar liðin mættust í næst síðustu umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í Max Schmeling-Halle í Berlin. Berlínarbúarnir unnu með 10 marka mun í miklum markaleik, 45:35, og eru þar með komnir í efsta sætið á nýjan leik, stigi á undan Magdeburg.

Síðasta umferð þýsku 1. deildarinnar fer fram á sunnudaginn. Þá mætir Füchse Berlin liði Rhein-Neckar Löwen í Mannheim meðan Magdeburg sækir Bietigheim heim til suður-Þýskalands.

Teitur Örn markahæstur

Teitur Örn Einarson var markahæstur hjá Gummersbach ásamt Miro Schluroff. Hvor þeirra skoraði sex mörk. Teitur Örn átti einnig tvær stoðsendingar. Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark og varð það jafnframt fyrsta mark leiksins.

Daninn Mathias Gidsen skoraði 11 mörk og gaf sex stoðsendingar fyrir Berlínarliðið. Hann var óstöðvandi sem fyrr. Landi Gidsel, Lasse Andersson, var næstur með sex mörk.

Vatn á myllu Erlangen

Ýmir Örn Gíslason og félagar í Göppingen unnu slag liðanna í suðrinu, 28:27, á heimavelli. Sigurinn var vatn á myllu Erlangen því með honum féll Stuttgart niður í 17. og næst neðsta sæti með 16 stig eins og Erlangen sem komst upp úr fallsæti. Erlangen, með Viggó Kristjánsson innanborðs sækir Wetzlar heim á sunnudaginn. Mikil spenna er í fallbaráttu deildarinnar, ekkert síður en á toppnum. Wetzlar tapaði fyrir HSV Hamburg í hafnarborginni í kvöld, 33:29.

Ýmir Örn skoraði ekki fyrir Göppingen í kvöld.

Viktor Petersen Norberg skoraði heldur ekki fyrir Wetzlar en var fastur fyrir í vörninni og var tvisvar vikið af leikvelli.


Staðan í þýsku 1. deild karla fyrir síðustu umferð:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -