Ekkert lát er á sigurgöngu Elínar Klöru Þorkelsdóttur og samherja í IK Sävehöf í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Í dag sóttu leikmenn IK Sävehof tvö stig í greipar VästeråsIrsta HF í keppnishöllina í Västerås. Lokatölur, 28:24, í næstsíðasta deildarleik beggja liða. IK Sävehöf hefur fyrir mánuði síðan tryggt sér deildarmeistaratitilinn og hefur átta stiga forskot fyrir lokaumferðina sem fram fer á þriðjudaginn.
Elín Klara skoraði fjögur mörk í fimm skotum og gaf tvær stoðsendingar. Hún hefur verið akkeri liðsins á leiktíðinni og nokkrum sinnum verið í úrvalsliði deildarinnar enda á meðal marka- og stoðsendingahæstu leikmanna deildarinnar.
Tap og úrslitakeppnin er fyrir bý
Berta Rut Harðardóttir skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu þegar lið hennar Kristianstad HK tapaði með eins marks mun fyrir nýkrýndum bikarmeisturum Boden, 27:26, á heimavelli í næstsíðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöld. Kristianstad situr í 10. sæti af 12 liðum og heldur sæti sínu í deildinni. Liðið á ekki lengur möguleika á sæti í úrslitakeppninni um sænska meistaratitilinn.


