Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 23. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa átt sannkallaðan stórleik í sögulegum sigri VfL Gummersbach á THW Kiel á útivelli á sunnudag. Var það fyrsti sigur Gummersbach á heimavelli Kiel síðan í september árið 2006.
Elliði Snær skoraði níu mörk úr tíu skotum er Gummersbach vann stórsigur, 34:26. Er þetta í annað sinn á tímabilinu sem Eyjamaðurinn er valinn í úrvalslið umferðarinnar, sem deildin sjálf stendur fyrir.
Elliði Snær og Kuzmanović fóru á kostum í fyrsta sigrinum í Kiel í 20 ár
Hann var einnig valinn í úrvalslið 20. umferðar í síðasta mánuði og nýtur sín áfram sérlega vel undir leiðsögn Guðjóns Vals Sigurðssonar þjálfara Gummersbach.
Gummersbach er í sjötta sæti þýsku deildarinnar með 31 stig, þremur á eftir Kiel í fimmta sætinu.


