Elmar Erlingsson átt þátt í næst flestum mörkum á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða sem lauk í Póllandi í gær. Hann varði í öðru sæti á lista þeirra sem gáfu flestar stoðsendingar og í fimmta sæti yfir þá sem skoruðu flest mörk. Samt tók Elmar þátt í sjö leikjum meðan flestir þeirra sem eru í efstu sætum voru þátttakendur í átta leikjum.
Samanlagt kom Elmar að 98 mörkum, skoraði sjálfur 57 mörk og átti 41 stoðsendingur. Þetta gerir 14 mörk að jafnaði í leik förlist handbolta.is ekki um of reikningslistin.
Aðeins Færeyingurinn Óli Mittún átti samanlagt fleiri stoðsendingar og mörk, 127, eða 15,9 mörk að meðaltali í leik. Í þriðja sæti varð Svíinn Axel Månsson með 95 mörk og stoðsendingar í átta leikjum.
Elmar varði fimmmti markahæstur á HM með 57 mörk í 81 skoti, 70% skotnýting. Þar af skoraði Eyjamaðurinn 21 mark úr 24 vítaköstum.
Elmar átti næst flestar stoðsendingar á mótinu, 41, eða eða rétt tæpar sex stoðsendingar í leik.

Birkir Snær Steinsson átti næst flestar stoðsendingar af leikmönnum íslenska liðsins, alls 14, tvær að jafnaði í leik.
Össur Haraldsson var næst markahæstur í íslenska landsliðinu með 39 mörk, tvö úr vítaköstum. Skotnýting Össurar var 78%. Skarphéðinn Ívar Einarsson varð þriðji með 31 mark og 65% skotnýtingu.
Jafnir markverðir
Markverðir íslenska landsliðsins, Breki Hrafn Árnason og Ísak Steinsson, eru með áþekka tölfræði þegar kemur að vörðum skotum. Ísak var með 28,9 % hlutfallsmarkvörslu og Breki Hrafn 28,5%. Þess má geta að Aleksandar Lacok markvörður færeyska landsliðsins, sem fór á kostum í leiknum við Svía um bronsið í gær, var með 28,2% hlutafallsmarkvörslu á mótinu.
Áhugasamir um frekari tölfræði frá HM 21 árs landsliða geta smellt hér.