Elvar Ásgeirsson leikmaður Ribe-Esbjerg og íslenska landsliðsins er í liði 22. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik eftir stórleik sinn með Ribe-Esbjerg í sigrinum á TTH Holstebro síðasta fimmtudag, 39:31, í Holstebro.
Elvar skaut öflugum leikmönnum ref fyrir rass með frammistöðu sinni. Hann skoraði átta mörk og var með fullkomna nýtingu í leiknum auk fimm stoðsendinga. Einnig var Elvar afar traustur í vörninni í leiknum.
Elvar er fimmti Íslendingurinn sem á sæti í liði umferðarinnar á leiktíðinni í þessari sterku deild. Aðrir sem sloppið hafa í gegnum nálarauga þeirra sem velja lið umferðarinnar á keppnistímabilinu eru Kristján Örn Kristjánsson, Donni, Jóhannes Berg Andrason, Ísak Gústafsson og Guðmundur Bragi Ástþórsson. Donni var auk þess valinn leikmaður mánaðarins í haust.





