- Auglýsing -

Evrópubikarmeistarar í Evrópudeildina – Selfoss brýtur blað – Haukar halda áfram

Evrópubikarmeistarar Vals. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Evrópubikarmeistarar Vals í handknattleik kvenna ætla sér ekki að verja titilinn á næstu leiktíð heldur hefur stefnan verið sett skör hærra með því að senda inn umsókn til þátttöku í Evrópudeildinni. Ekki liggur fyrir hvort Valur kemst beint í riðlakeppni keppninnar eða verður að taka þátt í forkeppni. HSÍ segir frá þessu í dag en skráningar í Evrópukeppni félagsliða fer í gegnum sambandið.

Haukar og Selfoss hafa verið skráð til leiks í Evrópubikarkeppninni í kvennaflokki. Selfoss-liðið brýtur blað með því að taka þátt í fyrsta sinn í Evrópukeppni félagsliða í kvennaflokki.


Aðeins 16 lið komast í riðlakeppni Evrópudeildar kvenna í stað 32 í karlaflokki. Þar af leiðandi er hugsanlegt að Valur verði að sætta sig við að fara í undankeppni Evrópudeildarinnar eins og liðið gerði haustið 2023.

Auk Vals ætla Haukar annað árið í röð að vera með í Evrópubikarkeppninni. Haukar komust í átta liða úrslit á síðasta keppnistímabili eftir nokkurra ára fjarveru frá Evrópumótum félagsliða.

Ríða á vaðið

Selfoss er þriðja kvennaliðið frá Íslandi sem hefur verið skráð til leiks í Evrópumótum félagsliða á næstu leiktíð. Selfoss tekur þátt í Evrópubikarkeppninni, þeirri sömu og Haukar verða með í og Valur vann í vor. Selfoss verður með í fyrsta sinn í Evrópukeppni félagsliða í kvennaflokki.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -