- Auglýsing -
Hákon Daði Styrmisson og félagar í Eintracht Hagen unnu Ferndorf í þýsku 2. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 32:27. Leikið var á heimavelli Ferndorf. Hagen lyfti sér a.m.k. upp í sjöunda sæti deildarinnar með sigrinum.
Hákon Daði skoraði fimm mörk fyrir Hagen í leiknum. Fjögur markanna skoraði hann úr vítaköstum. Einnig átti Eyjamaðurinn tvær stoðsendingar.
Þetta var þriðji leikur Hákons Daða í röð með Hagen eftir rúmlega árs fjarveru vegna krossbandaslits.
Önnur úrslit í 2. deild í gærkvöld:
Elbflorenz – GWD Minden 30:33.
Hüttenberg – TV Großwallstadt, 34:27.
Staðan í 2. deild:
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -