Færeyingar mæta Bosníumönnum í umspilsleikjum heimsmeistaramóts karla í handknattleik upp úr miðjum maí. Bosnía vann Kósovó samanlagt, 66:54, í tveimur viðureignum forkeppninnar sem lauk í dag. Kósovóbúar unnu síðari viðureignina í Pristina í dag, 33:29. Það dugði skammt eftir 13 marka tap í fyrri leiknum í Bosníu á fimmtudaginn.
Óvænt úrslit áttu sér stað í viðureign Rúmena og Tyrkja í Buzau í Rúmeníu í dag. Tyrkir unnu leikinn með sex marka mun, 37:31, og komust þar með áfram í umspilið. Flestir töldu að leið Rúmena væri greið í umspilsleikina eftir að þeir unnu sannfærandi sigur, 37:32, í Tyrklandi á fimmtudag. Vopnin snerust heldur betur í hendur Rúmena á heimavelli. Tapið er mikið áfall fyrir rúmenskan handknattleik sem mun hefur mátt sinn fífil fegri á síðustu árum, ekki síst í karlaflokki.
Í gær komust Ísraelsmenn áfram í umspilið þegar þeir lögðu Georgíumenn samanlagt með eins marks mun í tveimur leikjum sem háðir voru í Georgíu.
Forkeppni umspils HM karla, síðari umferð:
Belgía – Grikkland 31:34.
-Grikkland vann samanlagt, 63:57.
Georgía – Ísrael 30:28.
-Ísrael vann samanlagt, 59:58.
Slóvakía – Úkraína 31:32.
-Slóvakía vann samanlagt, 58:56
Litáen – Serbía 24:33
-Serbía vann samanlagt 75:49.
-Savukynas Gintaras er landsliðsþjálfari Litáen.
Pólland – Lettland 33:25.
-Pólland vann samanlagt, 66:49.
-Alexander Petersson er aðstoðarþjálfari Lettlands.
Kósovó – Bosnía 33:29.
-Bosnía vann samanlagt, 63:54.
Svartfjallaland – Finnland 30:26.
-Svartfjallaland vann samanlagt, 66:58.
Rúmenía – Tyrkland 31:37.
-Tyrkland vann samanlagt, 69:68.
Umspilsleikir HM 13. – 17. maí:
Slóvakía – Norður Makedónía.
Bosnía – Færeyjar.
Tékkland – Frakkland.
Sviss – Ítalía.
Svartfjallaland – Slóvenía.
Serbía – Ungverjaland.
Spánn – Ísrael.
Grikkland – Holland.
Noregur – Tyrkland.
Austurríki – Pólland.
Dregið í umspilsleikina í Herning í Danmörku laugardaginn 31. janúar.
Forkeppni EM karla 2028:
Eistland – Kýpur 35:13.
-Eistland vann samanlagt, 66:40, og fer áfram í undankeppnina eins Lettland og Tyrkland sem unnu Bretland og Búlgaríu fyrr í vetur. Dregið verður í riðla undankeppninnar fimmtudaginn 26. mars.



