Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Ísak Óla Eggertsson, öflugan leikstjórnanda, um að ganga til liðs við meistaraflokk karla fyrir komandi keppnistímabil í Grill 66-deildinni. Ísak, sem er uppalinn í KA á Akureyri, kemur til Víkings frá Haukum í Hafnarfirði.
Ísak Óli býr yfir mikilli reynslu og leikskilningi, og mun styrkja lið Víkings verulega í baráttunni í Grill 66-deildinni, segir í tilkynningu Víkings í dag.
„Það er virkilega spennandi að ganga til liðs við Víking. Ég sé mikla möguleika í þessu liði og það er greinilegt að verið er að byggja hér upp af metnaði. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum og taka þátt í þessu verkefni með flottum hópi leikmanna og þjálfara,“ er haft eftir Ísaki Óla í tilkynningu frá Víkingi.
Mikilvæg viðbót
„Við erum gríðarlega ánægðir með að fá Ísak Óla í hópinn okkar. Hann er hugmyndaríkur leikstjórnandi með mikla sýn á leikinn, og hefur sýnt það bæði hjá KA og annars staðar að hann er klár í að stýra sóknarleik liðsins. Þetta er mikilvæg viðbót við hópinn okkar sem við teljum geta gert okkur kleift að stíga næsta skref,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari og yfirmaður handknattleiksmála hjá Víkingi en hann hefur verið iðinn við að krækja í leikmenn fyrir karla- og kvennalið félagsins síðustu viku auk þess að samningar við þá leikmenn sem fyrir eru hafa verið endurnýjaðir.
Víkingur hafnaði í 3. sæti í Grill 66-deildinni á síðasta tímabili.
Karlar – helstu félagaskipti 2025