-Auglýsing-

FH gerði Gróttu skráveifu

- Auglýsing -

FH gerði Gróttu skráveifu í toppbaráttu Grill 66-deildar kvenna í handknattleik í kvöld. Skráveifu sem getur reynst Gróttuliðinu slæm í kapphlaupinu við HK um efsta sæti deildarinnar á endasprettinum. FH vann viðureignina við Gróttu með einu marki, 25:24. Thelma Dögg Einarsdóttir skoraði sigurmarkið nokkrum sekúndum fyrir leikslok.


Þar með hefur HK endurheimt efsta sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir með 34 stig en Grótta er með 32 stig. Aðeins eitt lið fer beint upp í Olísdeild. Liðið sem hafnar í öðru sæti verður að gera sér að góðu að þræða nálarauga umspilsins.

HK lagði Val 2 fyrr í vikunni, 31:24. Áður en þá viðureign kom var Grótta í efsta sæti deildarinnar með jafn mörg stig og HK en hafði betri stöðu í innbyrðis viðureignum liðanna.

FH-liðið, sem situr í fjórða sæti deildarinnar, 14 stigum á eftir Gróttu, var sterkara liðið lengst af viðureignarinnar við Gróttu í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. M.a. var Hafnarfjarðarliðið sex mörkum yfir í hálfleik, 18:12. Saman dró með liðunum á lokakaflanum og skoraði Grótta m.a. fimm af síðustu átta mörkunum. Það dugði ekki og FH fór með bæði stigin heim í Kaplakrika.


Mörk Gróttu: Katrín S. Scheving Thorsteinsson 9, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 5, Ída Margrét Stefánsdóttir 4, Edda Steingrímsdóttir 2, Þóra María Sigurjónsdóttir 2, Elísabet Ása Einarsdóttir 1, Svandís Birgisdóttir 1.
Varin skot: Anna Karólína Ingadóttir 7, Andrea Gunnlaugsdóttir 4.

Mörk FH: Thelma Dögg Einarsdóttir 7, Telma Medos 5, Eva Guðrúnardóttir Long 4, Elísa Björt Ágústsdóttir 3, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 3, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 3.
Varin skot: Szonja Szöke 16.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -