-Auglýsing-

Fjölnir og Fram 2 unnu sínar viðureignir

- Auglýsing -

Fjölnir lagði Aftureldingu, 26:24, í þriðju síðustu umferð Grill 66-deildar kvenna í handknattleik er liðin mættust í Myntkaup-höllinni að Varmá í kvöld. Aftureldingarliðið situr á botni deildarinnar með 11 stig. Fram 2 sem var á sömu slóðum og Aftureldingarliðið fyrir viðureignir kvöldsins gerði sér lítið fyrir og lagði Víking, 29:22, í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Víkingur situr í þriðja sæti. Fjölnisliðið fór hinsvegar upp í 5. sæti með 14 stig eftir sigurinn að Varmá.


Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Fram 2 – Víkingur 29:22 (15:12).

Mörk Fram 2: Sara Rún Gísladóttir 11, Aníta Rut Eggertsdóttir 7, Birna Ósk Styrmisdóttir 3, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 2, Emma Brá Óttarsdóttir 1, Guðrún Eiríksdóttir 1, Margrét Á. Bjarnhéðinsdóttir 1, Natalía Jóna Jensdóttir 1, Sylvía Dröfn Stefánsdóttir 1, Þóra Lind Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 18.

Mörk Víkings: Auður Brynja Sölvadóttir 7, Valgerður Elín Snorradóttir 5, Ivana Jorna Dina Meincke 3, Sara Björg Davíðsdóttir 3, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 1, Emilía Ína Burknadóttir 1, Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir 1, Sunna Katrín Hreinsdóttir 1.
Varin skot: Þyri Erla L. Sigurðardóttir 10.

Afturelding – Fjölnir 24:26 (15:14).

Mörk Aftureldingar: Katrín Helga Davíðsdóttir 9, Drífa Garðarsdóttir 4, Brynja Rögn Ragnarsdóttir 3, Þórdís Eva Elvarsdóttir 3, Arna Sól Orradóttir 1, Ásdís Halla Helgadóttir 1, Karen Hrund Logadóttir 1, Katrín Erla Kjartansdóttir 1, Susan Ines Barinas Gamboa 1.
Varin skot: Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir 15.

Mörk Fjölnis: Berglind Benediktsdóttir 9, Hildur Sóley Káradóttir 4, Sara Kristín Pedersen 4, Stefanía Ósk Engilbertsdóttir 3, Guðrún Maryam Rayadh 2, Vera Pálsdóttir 2, Matthildur Lóa Baldursdóttir 1, Karólína Ósk Arndal Sigurlaugardóttir 1.
Varin skot: Signý Pála Pálsdóttir 10.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

FH gerði Gróttu skráveifu

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -