Íslandsmeistarar Fram hafa skráð sig til leiks í Evrópudeildina í handknattleik karla á næsta keppnistímabili. Ísland mun þar með eiga tvö lið í keppninni í haust því eins og handbolti.is sagði frá á dögunum er mikill hugur í stjórnendum og leikmönnum Stjörnunnar og talsvert síðan ákveðið var að nýta tækifærið. Stjarnan á rétt á þátttöku vegna þess að bikarmeistarar Fram urðu einnig Íslandsmeistarar. Stjarnan varð í öðru sæti í bikarkeppninni.
Auk Fram og Stjörnunnar hefur FH sent inn þátttökutilkynningu í Evrópubikarkeppni karla í handknattleik. FH hefur verið í Evrópumótum félagsliða um langt árabil.
Valur ætlar ekki að senda karlalið sitt til keppni í Evrópubikarkeppninni að þessu sinni. Ágúst Þór Jóhannsson nýráðinn þjálfari karlaliðs Vals staðfesti þetta við handbolta.is í hádeginu. Valur hefur annars sent lið sitt til keppni í Evrópudeildinni og í Evrópbikarnum undanfarin fjögur ár. M.a. vann Valur Evrópubikarkeppnina vorið 2024, fyrst íslenskra félagsliða.
Liggur fyrir í júlí
Upp úr miðjum júlí á að liggja í síðasta lagi fyrir hvort Fram og Valur fara í forkeppni Evrópudeildarinnar eða beint í riðlakeppnina, annað hvort eða bæði. Eins mun liggja fyrir um svipað leyti hvort FH hefur leik í fyrstu eða annarri umferð Evrópubikarkeppninnar.