- Auglýsing -
- Auglýsing -

Framarar eru komnir á blað í Grill 66-deildinni

Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Fram2 vann stórsigur á Berserkjum í síðasta leik annarar umferðar Grill 66-deildar kvenna í handknattleik í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal í dag, 41:22. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik stakk Fram-liðið af í síðari hálfleik. Þegar fyrri hálfleikur var að baki var staðan 19:16.
Sigurinn var sá fyrsti hjá Fram2 í deildinnni. Berserkir eru án stiga.

Mörk Fram2: Valgerður Arnalds 9, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 9, Sara Rún Gísladóttir 5, Elín Ása Bjarnadóttir 4, Þóra Lind Guðmundsdóttir 4, Matthildur Bjarnadóttir 3, Sylvía Dröfn Stefánsdóttir 3, Natalía Jóna Jensdóttir 2, Silja Katrín Gunnarsdóttir 2.
Varin skot: Þórdís Idda Ólafsdóttir 16.

Mörk Berserkja: Agnes Ýr Bjarkadóttir 6, Heiðrún María Guðmundsdóttir 5, Thelma Dís Harðardóttir 4, Thelma Lind Victorsdóttir 3, Arna Sól Orradóttir 2, Elín Ása Einarsdóttir 1, Auður Margrét Pálsdóttir 1.
Varin skot: Sólveig Katla Magnúsdóttir 11, María Ingunn Þorsteinsdóttir 3, Halldóra Sif Guðmundsdóttir 1.

Tölfræði leiksins.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Grill 66-deild kvenna – fréttir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -