Aftureldingu tókst ekki að nýta tækifærið sem gafst með tapi Vals gegn Haukum í kvöld og tylla sér á topp Olísdeildar er þeir sóttu Framara heim í kvöld. Framarar unnu öruggan sigur, 30:26. Fram var einnig fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16:12. Liðið hefur 18 stig í sjöunda sæti en Aftureldingarmenn eru í þriðja sæti með 23 stig.
Þegar komið var inn í síðari hálfleik voru Mosfellingar líklegir til þess að sauma að leikmönnum Fram. Þeir minnkuðu muninn í eitt mark, 19:18, eftir um 10 mínútur. Á næstu 10 mínútum gerðu leikmenn Fram hins vegar að mestu út um leikinn. Þeir náðu átta marka forskoti, 28:20, sem Aftureldingarliðið var aldrei líklegt til þess að vinna upp.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Mörk Fram: Eiður Rafn Valsson 6, Erlendur Guðmundsson 5, Dánjal Ragnarsson 4, Ívar Logi Styrmisson 4/1, Kjartan Þór Júlíusson 3, Kristófer Tómas Gíslason 3, Max Emil Stenlund 2, Dagur Fannar Möller 1, Rúnar Kárason 1, Viktor Sigurðsson 1.
Varin skot: Breki Hrafn Árnason 14/1, 35%.
Mörk Aftureldingar: Árni Bragi Eyjólfsson 6/1, Ævar Smári Gunnarsson 5, Ihor Kopyshynskyi 4, Harri Halldórsson 3, Kristján Ottó Hjálmsson 3, Leó Halldórsson 2, Andri Freyr Friðriksson 1, Haraldur Björn Hjörleifsson 1, Oscar Sven Leithoff Lykke 1.
Varin skot: Sigurjón Bragi Atlason 6, 30% – Einar Baldvin Baldvinsson 4, 21,1%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



