- Auglýsing -
Framhald Íslandsmótsins í handknattleik verður ákveðið á formannafundi Handknattleikssambands Íslands sem hefst klukkan 17 í dag. Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, staðfesti þetta í samtali við handbolta.is.
Til stóð að formannafundur yrði haldinn í hádeginu í dag en í ljósi fregna að væntanleg væru ný tilmæli til íþróttahreyfingarinnar frá sóttvarnayfirvöldum var ákveðið að fresta fundi fram eftir degi og fram yfir blaðamannafund Almannavarna sem var að hefjast.
Fundað verður í gegnum fjarfundabúnað.
- Auglýsing -