-Auglýsing-

Framkvæmdastjóri Veszprém hótar leikmönnum hörðum refsingum

- Auglýsing -

Csaba Bartha, framkvæmdastjóri ungverska handknattleiksfélagsins One Veszprém HC, hótar því að refsa leikmönnum karlaliðsins tapi það fleiri leikjum á tímabilinu.

Veszprém, sem Bjarki Már Elísson leikur með, hefur leynt og ljóst stefnt að því að vinna Meistaradeild Evrópu um árabil en hefur ekki enn tekist. Er það þrátt fyrir að liðið hafi fjórum sinnum komist í úrslit, árin 2019, 2016, 2015 og 2002.


„Frammistaðan og úrslitin í riðlakeppni Meistaradeildarinnar var ekki í samræmi við væntingar. 50 ára gamalt félag með mikla hefð og góða sögu hefur ekki efni á slíkri hegðun. Ég verð að draga línu í sandinn. Ég tel að nú sé nauðsynlegt að ég grípi inn í af festu en ekki hvað varðar leikskipulag eða æfingar.

Þess vegna hef ég sem framkvæmdastjóri ákveðið að ef okkur mistekst að ná þeim markmiðum sem við settum okkur í upphafi tímabils mun ég draga alla jafnt til ábyrgðar og beita hörðum refsingum. Ég hef tilkynnt liðsmönnum og þjálfarateyminu um þessa ákvörðun mína,“ skrifaði Bartha í fréttatilkynningu.

Gætum þurft að taka stærri ákvarðanir

Veszprém hafnaði í fimmta sæti A-riðils Meistaradeildarinnar og mætir PSG í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar, þar sem sæti í átta liða úrslitum er í boði.

„Við eigum ennþá eftir síðustu leiki bikarkeppninnar, leiki um ungverska meistaratitilinn og leiki í Meistaradeildinni. Við erum að feta erfiða slóð vegna þess að við stóðum okkur illa í riðlakeppninni. Við erum í mun erfiðari aðstöðu en búist var við.


En við eigum ennþá möguleika. Nærri því 50 ára gamalt félag okkar með sína merku sögu gæti enn náð markmiðum sínum. Þrátt fyrir það get ég ekki unað því að vinnan og árangur liðsins haldi áfram með þessum hætti.

Við þurfum fyrst að komast í gegnum tímabilið og svo getum við lagt endanlegt mat á það með hliðsjón af úrslitum. Náum við ekki góðum úrslitum gætum við þurft að taka stærri ákvarðanir í sumar. Núna set ég pressu á liðið og ef það uppfyllir ekki þessar væntingar munu verða afleiðingar,“ skrifaði hann einnig.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -