Hvorki Ribe-Esbjerg né Nordsjælland tókst að komast í undanúrslit dönsku bikarkeppninnar í karlaflokki í kvöld þegar liðin léku í átta liða úrslitum.
Halldór Jóhann Sigfússon og liðsmenn hans í Nordsjælland gáfu sinn hlut ekki eftir fyrr en í fulla hnefana að loknum tveimur framlengingum og vítakeppni þegar þeir mættu Bjerringbro/Silkeborg. Vart mátti á milli sjá en Jótarnir náðu að merja út sigur, 37:36, eftir að markvörður liðsins varði vítakast í vítakeppninni.
Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 28:28, eftir frábæran síðari hálfleik hjá leikmönnum Nordsjælland en þeir voru fjórum mörkum undir eftir fyrri hálfleik, 17:13.
Þrjú mörk
Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk og átti fimm stoðsendingar í fimm marka tapi Ribe-Esbjerg fyrir GOG 40:35, í Phønix Tag Arena í Gudme á Fjóni. Emil Madsen átti stórleik fyrir GOG og skoraði 13 mörk. Ágúst Elí Björgvinsson stóð hluta leiksins í marki Ribe-Esbjerg og varði þrjú skot á þeim tíma, 17%.
Annað kvöld fara fram tveir síðari leikir átta liða úrslita. Aalborg mætir Skjern og Skanderborg AGF sækir heim liðsmenn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í Fredericia HK.