Þýska landsliðið undir stjórn Alfreðs Gíslasonar vann egypska landsliðið öðru sinni á fjórum dögum í vináttulandsleik að viðstöddum 95.00 áhorfendum í ÖVB-Arena í Brimum í dag, 34:33. Þýska liðið lék frábærlega í fyrri hálfleik og hafði sex marka forskot að honum loknum, 19:13.
Heldur meira var um varnarleik í viðureigninni í en í þeirri fyrri sem þýska liðið vann með þriggja marka mun, 41:38.
Egyptar taka á móti íslenska landsliðinu í tveimur vináttuleikjum í Kaíró í maí.
Hvorki Marko Grgic né Timo Kastening gátu leikið með þýska landsliðinu í dag. Juri Knorr, sem hefur verið töluvert frá keppni vegna meiðsla síðustu vikur, meiddist í viðureigninni í dag.
Julian Köster var markahæstur í þýska liðinu með sex mörk. Matthes Langhoff, Renars Uscins og Lukas Mertens skoruðu fjögur mörk hvor.
Markvörðurinn sterki, Andreas Wolff, fékk frí frá báðum landsleikjunum.
Yehia Khaled var atkvæðamestur Egypta með átta mörk en Ahmed Nafea skoraði sjö mörk. Einn þekktasti handknattleiksmaður Egypta á síðustu árum, Ali Zein, var fjarri góðu gamni í leikjunum.



