Danski handboltaþjálfarinn Lars Walther og fyrrverandi leikmaður KA hefur eftir langa og erfiða baráttu unnið sigur í dómsmáli sem hann höfðaði eftir dramatískan brottrekstur frá pólska handboltafélaginu Azoty-Pulawy í mars 2021. Walther frétti af brottrekstrinum gegnum fjölmiðla meðan hann lá alvarlega veikur á sjúkrahúsi með lungnabólgu í kjölfar covid-19.
Vanhæfur dómari
Walther höfðaði málið strax árið 2021 eftir að hann hafði náð heilsu. Í uphafi blés ekki byrlega þegar því var vísað frá dómi. Eftir að í ljós kom að dómari í málinu var einnig að vinna fyrir aðalstyrktaraðila Azoty-Pulawy var dómarinn dæmdur vanhæfur og málið tekið upp á ný. Það leiddi til dómssáttar milli deilenda og Walther dæmdar fjárhagslegar bætur.
„Þetta kom mér ekki mjög mikið á óvart. Ég hef líka unnið í Rúmeníu og Norður-Makedóníu, þar sem einnig hafa gerst ótrúlegir hlutir,“ segir Lars Walther við TV 2 SPORT um þetta óvenjulega mál þar sem honum var sagt upp án þess að stjórnendur félagsins hefðu við hann samband.
Snerist um réttlæti fremur en laun
Walther leggur áherslu á að málið snúist um ógreidd laun en hann átti ár eftir af samningi við Azoty-Pulawy þegar honum var sparkað.
„Málið er afar mikilvægt vegna þess að það eru margir aðrir þjálfarar sem hafa verið reknir og verið illa komið fram við af hálfu þeirra félags sem þeir hafa starfað fyrir og félögin oft sloppið með það. Réttlætinu er fullnægt,“ segir Walther.
Í dag starfar Lars Walther sem þjálfari í Japan, en á síðustu tveimur áratugum hefur Walther þjálfað víðsvegar í Evrópu auk heimalandsins, Danmörku.
Walther lék með KA frá 1998 til 2000.
Handbolti.is sagði frá uppsögninni á síðunum tíma: