Þórsarar ráku af sér slyðruorðið í kvöld og fögnuðu öruggum sigri á lánlausum Stjörnumönnum, 29:24, í Hekluhöllinni í Garðabæ í 16. umferð Olísdeildar karla í handknattleik. Þetta var fyrsti sigur Þórsara í deildinni síðan 23. október þegar þeir lögðu Selfoss, 31:28, í íþróttahöllinni á Akureyri.
Með sigrinum í kvöld færðist Þór upp að hlið Selfoss í stigum talið. Hvort lið hefur níu stig. HK og Stjarnan eru aðeins stigi á undan en ÍR vantar fjögur stig til þess að jafna metin við Þór og Selfoss.
Þórsarar voru mun öflugri í leiknum í Hekluhöllinni. Þeir voru sjö mörkum yfir í hálfleik, 17:10. Mest munaði níu mörkum á liðunum þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik, 21:12.
Adam Thorstensen markvörður var bestur Stjörnumanna sem voru án nokkurra leikmanna að þessu sinni.
Oddur Gretarsson lék á als oddi hjá Þór og skoraði 11 mörk. Svipaða sögu má segja um Hafþór Má Vignisson. Hann kunni vel við sig á gamla heimavellinum, skoraði fimm mörk auk þess að vera með sköpuð færi.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Mörk Stjörnunnar: Benedikt Marinó Herdísarson 6/1, Hans Jörgen Ólafsson 4, Starri Friðriksson 4, Róbert Orri Arason 3, Jóhannes Bjorgvin 3, Gauti Gunnarsson 1, Aron Valur Gunnlaugsson 1, Loftur Ásmundsson 1, Atli Hrafn Bernburg 1.
Varin skot: Adam Thorstensen 15, 34,9%.
Mörk Þórs: Oddur Gretarsson 11/4, Hafþór Már Vignisson 5, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Halldór Kristinn Harðarson 3, Kári Kristján Kristjánsson 2, Hákon Ingi Halldórsson 2, Aron Hólm Kristjánsson 1, Arnór Þorri Þorsteinsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 12, 34,3% – Tristan Ylur Guðjónsson 0.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



