Upp er komin undarleg staða í máli þýska varnartröllsins Johannes Golla, sem hefur samþykkt að ganga til liðs við MT Melsungen frá SG Flensburg-Handewitt í sumar. Í samningi Golla við Melsungen er nefnilega ákvæði um að hægt sé að kaupa hann upp fyrir 400.000 evrur.
Félagaskiptasíðan RTHandball Germany gerir að því skóna að Flensburg íhugi nú hvort það nýti sér ákvæðið í samningi Golla við Melsungen og kaupi þannig sinn eigin leikmann strax aftur.
Línumaðurinn Golla er fyrirliði Flensburg og sömuleiðis lykilmaður í vörn og sókn hjá Alfreði Gíslasyni í þýska landsliðinu.
Hann mun klára yfirstandandi tímabil með Flensburg en á svo að ganga til liðs við Melsungen að því loknu, það er ef Flensburg ákveður að punga ekki út 400.000 evrum, jafnvirði 58,2 milljóna íslenskra króna, til þess að halda lykilmanni sínum.



