„Þetta er bara svekkjandi. Við töpum og það er aldrei gaman að tapa,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi Íslands, í samtali við handbolta.is eftir að liðið tapaði í annað sinn fyrir Svíþjóð í vináttulandsleik á þremur dögum, að þessu sinni á hans gamla heimavelli í Kaplakrika.
„Okkar helsta vandamál enn og aftur var að við klikkum á dauðafærum. Við náðum ekki að nýta þau. Það er svo mikið af augnablikum þar sem við getum snúið leiknum við og þá klikkum við á dauðafærum. Við hefðum getað jafnað metin í lokin og sett svona alvöru pressu á þá.
Annar sænskur sigur á íslenskri grund
Í síðustu fjórum sóknunum held ég að við klikkum á dauðafæri í hverri þeirra, ég er ekki alveg með töluna á því. En á heildina litið er fullt sem við getum tekið úr þessu verkefni. Það er bara að vera jákvæður og áfram veginn,“ sagði Gísli Þorgeir.
Fyrri leikurinn var betri
Ísland tapaði með tveimur mörkum á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld og með þremur í kvöld. Beðinn um að bera saman leikina tvo sagði hann:
„Ég myndi segja að fyrri leikurinn hafi verið betri gæðalega séð. Þeir voru líka aðeins þéttari og flatari, þá er erfiðara að spila varnir og maður þarf að taka aðeins öðruvísi á því heldur en ef þeir eru framarlega. Það er auðvitað eitthvað sem við þurfum að takast á við. En eftir situr ágætur leikur.“
Gísli Þorgeir viðurkenndi að þrátt fyrir tapið hafi það verið ánægjulegt að spila aftur á sínum gamla heimavelli í Kaplakrika.
„Það var reyndar geðveikt gaman að koma aftur í Krikann. Fyrir mig var ótrúlega gaman að spila þennan leik,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson við handbolta.is.



