Mathias Gidsel heldur áfram að fra á kostum með þýska liðinu Füchse Berlin. Á gærkvöld bætti hann eigin markamet í þýsku 1. deildinni þegar hann skoraði sitt 264. mark í opnum leik í deildinn á tímabilinu í gærkvöld.
Gidsel sló met sitt frá síðasta tímabili sem var 263 mörk. Hann er nú næst markahæstur í deildinni með 265 mörk, þar af eitt mark úr vítakasti. Skotnýting Danans er 77,5%. Gidsel hefur einnig gefið 122 stoðsendingar.
Marko Grgic, leikmaður Eisenach er markahæstur með 292 mörk, þarf 83 úr vítaköstum.
Markahæstur Íslendinga í deildinni er Andri Már Rúnarsson, leikmaður Leipzig, með 150 mörk í 19. sæti.
Gidsel skoraði 11 mörk í 10 marka sigri Füchse Berlin, 45:35, á VfL Gummersbach Berlínarliðið er nú í þeirri stöðu að það þarf eitt stig úr leiknum við Rhein-Neckar Löwen í lokaumferðinni á sunnudaginn að tryggja sér þýska meistaratitilinn í fyrsta sinn.
Füchse er ósigrað á heimavelli í Max-Schmeling-Halle allt tímabilið með 33 stig af 34 mögulegum.
Leikur Füchse Berlin gegn Rhein-Neckar Löwen hefst klukkan 13 á sunnudaginn í Mannheim, heimavelli Rhein-Neckar Löwen.