- Auglýsing -
Gísli Örn Alfreðsson hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Gróttu. Samningurinn tekur til næstu tveggja ára.
Gísli Örn er 19 ára gamall og leikur sem skytta eða miðjumaður. Hann kemur úr sterkum 2006-árgangi sem varð til að mynda bikarmeistari í fyrra og lenti í 2. sæti Íslandsmótsins eftir háspennu í úrslitaleiknum.
Gísli Örn hefur leikið 36 leiki fyrir meistaraflokk. Í vetur hefur Gísli skorað 28 mörk í Grill 66 deild karla með Gróttuliðinu.
„Hann er öflugur beggja megin vallarins. Hann er útsjónarsamur leikmaður en einnig góður skotmaður. Gísli er framtíðarleikmaður félagsins og eru miklar vonir bundnar við hann á næstu árum,“ segir í tilkynningu Gróttu.
- Auglýsing -



